Berlínarfarar ætla að hittast laugardaginn 27. ágúst.
Hópur hlaupara sem þreyta Berlínarmaraþon 25. september nk. ætlar að hittast og hlaupa saman næstkomandi laugardag. Lagt verður af stað frá líkamsræktarstöðinni Laugum kl. 9:30 á laugardagsmorgun og hlaupnir 25-35 km, allt eftir vilja og áætlunum hvers og eins.
Eftir hlaup eða um kl. 13 stendur til að koma saman í Lauga Café og ræða málin.
Allir Berlínarfarar eru hvattir til að mæta.