Eins og fram hefur komið í fréttatilkynningu frá framkvæmdaraðilum Brúarhlaupsins voru vandræði með tölvuúrslitavinnslu eftir hlaupið. Það hefur því verið ákveðið að taka út tímana í 10 km hlaupi þar til búið er að leiðrétta þá.
Allir tímar og röð hlaupara er til sem afrifur sem raðað var á pinna þegar í mark var komið. Það þarf því að handslá inn alla tíma og munu úrslitin fyrir 10 km vera birt þegar því er lokið.
Hlauparar þurfa því ekki að hafa áhyggjur af því að fá ekki tímann sinn, en það mun verða smá töf á því.