Tímar í Reykjavíkurmaraþoninu ógildir

birt 03. september 2018

Þátttakendur í heilu og hálfu maraþoni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka fá tíma sína ekki viðurkennda vegna mistaka við framkvæmd hlaupsins. Aðstandendur Reykjavíkurmaraþonsins sendu frá sér tilkynningu þess efnis í dag.Brautin 213 metrum of stuttFæra þurfti grindur við snúningspunkt á Sæbraut stuttu fyrir hlaup vegna umferðar og láðist að færa þær til baka aftur. Afleiðingin varð sú að hlaupaleiðin var 213 metrum of stutt. Þetta hefur verið staðfest með endurmælingu á allri brautinni.

Yfirdómari hlaupsins og Dómstóll Reykjavíkurmaraþons, sem í eiga sæti fulltrúar frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur og Frjálsíþróttasambandi Íslands, hafa komist að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að úrslitin í maraþoni og hálfmaraþoni skulu standa þ.e. að verðlaunahafar í öllum flokkum eru gildir verðlaunahafar í hlaupinu og í Íslandsmeistaramótinu í maraþoni. Tímarnir eru hinsvegar því miður ógildir vegna þess að brautin var of stutt og verða því ekki færðir í afrekaskrá Frjálsíþróttasambands Íslands. Þá er óvíst hvort að erlend hlaup taki tímana gilda sem inntökuskilyrði í sínar keppnir.

Þessi tíðindi eru einstaklega hvimleið fyrir hlaupara sem margir hverjir lögðu mikið á sig í löngum undirbúningi fyrir Reykjavíkurmaraþon. Afrek Arnars Péturssonar, 2:26:43 í maraþoni, sem er besti tími Íslendings í maraþonhlaupi hér á landi er svo dæmi sé tekið ógilt.

Íþróttabandalag Reykjavíkur hefur beðið hlaupara innilega afsökunar á þessum mistökum í tölvupósti sem sendur var í dag.

„Í ár eins og undanfarin ár var lagður mikill metnaður og vinna í að gera þessa miklu hlaupahátíð sem glæsilegasta og eru framkvæmdaaðilar hlaupsins því niðurbrotnir yfir þessu. Nú þegar er búið að ákveða að fjölga enn frekar eftirlitsmönnum á brautinni á næsta ári til að koma í veg fyrir að þetta geti endurtekið sig," segir í tilkynningu frá hlaupahöldurum.