Tímar úr reiðhjólakeppni Brúarhlaups munu ekki birtast

birt 13. ágúst 2015

Tímar úr reiðhjólakeppni, Brúarhlaups Selfoss, munu ekki birtast vegna mistaka. Eftirfarandandi yfirlýsing hefur borist frá hlaupahöldurum;

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður ekki hægt að birta tíma í hjólreiðakeppni, Brúarhlaups Selfoss. Vegna mannlegra mistaka við vinnslu þeirra er ekki hægt að staðsetja réttan tíma á keppendur. Stjórnendur hlaupsins harma þetta mjög og munu gera allt til þess að þetta hendi ekki aftur að ári, m.a með því að skoða að setja flögur á alla keppendur í hjólreiðum.

F.h Brúarhlaups Selfoss, Helgi Sig. Haraldsson.