Vegna nýrra tilfella af COVID-19 vírusnum sem staðfest hafa verið í Japan, hefur verið ákveðið að fella Tokyo maraþon 2020 niður, nema fyrir afrekshlaupara (elite) og afrekshjólastólakeppendur.
Þeir hlauparar sem hafa skráð sig í Tokyo maraþon 2020, fá skráningu í hlaupið 2021, en ekki verður um neinar endurgreiðslur á þátttökugjaldi að ræða og því þurfa allir þeir sem voru búnir að greiða fyrir hlaupið í ár að borga þátttökugjald aftur ef þeir vilja taka þátt 2021.
Mynd: livejapan.com