UFA Eyrarskokk með hlaupanámskeið fyrir norðan

birt 03. maí 2016

UFA Eyrarskokk stendur fyrir sex vikna hlaupanámskeiði sem  hefst 10. maí.

Hlaupið er þrisvar í viku; á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:15 og sunnudögum kl. 11:00. Æfingarnar eru fyrir byrjendur í hlaupum jafnt sem lengra komna. Frábært tækifæri fyrir unga sem aldna til að koma sér í hlaupaform fyrir sumarið.

Umsjónarmaður er Sonja Sif Jóhannsdóttir  íþróttafræðingur.

Skráning og nánari upplýsingar fást á namskeidufa@gmail.com.
Verð 16.000 (12.000 fyrir framhaldsskólanema).