Framfarir, Hollvinafélag millivegalengda- og langhlaupara, auglýsir til umsóknar styrki fyrir árið 2011. Um er að ræða tvo styrki fyrir millivegalengda- og langhlaupara til að standa straum af hluta af kostnaði vegna keppni eða æfinga á árinu.
Þær upplýsingar sem þurfa að koma fram eru:
- Fullt nafn
- Kennitala
- Heimilisfang
- Sími og netfang
- Bankanúmer, höfuðbók, reikningsnúmer
Einnig þarf að koma fram:
- Greinargóð lýsing á því hvernig styrknum yrði varið
- Drög að kostnaðaráætlun
- Þróun árangurs árið 2009 og 2010
- Bestu tímar í helstu keppnisgreinum viðkomandi
Umsóknum skal skila á rafrænu formi fyrir miðnætti sunnudaginn 11. desember 2010 til Gunnars Páls Jóakimssonar á netfangið gpj@ismennt.is.
Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til umsagnar.
Styrkirnir verða afhentir við sama tækifæri og fræðslukvöld Framfara fer fram annað hvort í lok desember eða byrjun janúar.
Framfarir, Hollvinafélag millivegalengda og langhlaupara
Fríða Rún Þórðardóttir
Formaður Framfara