Upplýsingar um Hengilshlaupið - Fréttatilkynning

birt 24. júní 2012

Nú er Esjuhlaupið yfirstaðið sem heppnaðist alveg frábærlega vel, svo nú nú er heldur betur komin pressa á okkur sem stöndum að Hengilshlaupinu þann 28. júlí og er fyrsta 50 mílna utanvegahlaupið á Íslandi eða 81 km.

Til að gera þetta sem best úr hendi, munum við bjóða þeim sem áhuga hafa á þessu hlaupi að mæta á æfingu hjá okkur sunnudaginn 1. júlí, þar sem farin verður um það bil 25 km hluti af leiðinni. Ætlunin er að hittast við Ölkelduháls og fara inn Innstadal og upp á Skeggja og þaðan til baka, fara svo í sund og hafa rabbfund þar á eftir. Þar munum við reyna að svara öllum spurningum og athuga hvar við getum hugsanlega bætt eitthvað sem þið sjáið en okkur hefur yfirsést. Ætluninn er að reyna mynda hlaupið og nota síðan til að auglýsa hlaupið í framtíðinni.

Ef ekki er hægt að selja þetta hlaup þá veit ég ekki hvað, því fallegri hlaupaleið er vandfundinn á þessu landi! Laugavegshlaupið og Vesturgatan eru tveimur vikum áður, sem passar akkúrat sem síðasta langa æfingin fyrir Hengilshlaupið.

Kveðja Pétur Ingi Frantzson. S: 8446617.