Frábærir hlauparar þau Arnar Pétursson og Andrea Kolbeinsdóttir.Arnar Pétursson og Andrea Kolbeinsdóttir voru valin götuhlauparar ársins á uppskeruhátíð FRÍ sem haldin var á föstudagskvöld. Þá voru Þorbergur Ingi Jónsson og Elísabet Margeirsdóttir valin ofurhlauparar ársins. Þau Aníta Hinriksdóttir og Kristinn Þór Kristinsson voru valin millivegalengdarhlauparar ársins.Verðskulduð viðurkenning fyrir þessa frábæru hlaupara. Það verður spennandi að sjá hvort lesendur hlaup.is séu sammála þessu vali en lesendur okkar velja langhlaupara ársins og utanvegahlaupara ársins 2018 snemma á nýju ári. Nánar um uppskeruhátíð FRÍ.
Mynd: Fossvogshlaup Víkings.