Útdráttarverðlaun fyrir febrúar-mars viðskipti á hlaup.is

birt 19. maí 2007

Dregið hefur verið úr potti þeirra sem versluðu á hlaup.is í febrúar og mars. Allir þeir sem versluðu á hlaup.is í febrúar og mars fyrir meira en 5.000 kr. (fyrir utan póstburðargjöld) áttu möguleika á að geta unnið Nike hlaupaskó.

Ein kona og einn karl voru dregin út, þau Steffan Iwersen, Glaðheimum 20, 104 Reykjavík og Sólveig Bjarnadóttir, Bólstaðarhlíð 12,
105 Reykjavík og geta þau haft samband við hlaup.is til að fá skóna.

Einnig voru dregin út tvenn aukaverðlaun sitthvort parið af Seger sokkum. Það voru Þórunn Benediktsdóttir, Freyjuvöllum 6, 230 Keflavík og Hilmir Guðlaugsson, Kambahrauni 20, 810 Hveragerði sem fengu sitthvort parið. Þau eru einnig beðin að hafa samband við hlaup.is.

Þess má geta að Sólveig vann einnig í samskonar útdrætti í fyrra, en þá vann hún forláta GSM síma.