Keppendur fóru heldur betur á flug í Valshlaupinu í fyrra.Valshlaupinu sem fara átti fram 12. september næstkomandi hefur verið frestað til 21. nóvember. Ástæðan fyrir frestuninni eru framkvæmdir við nýjan gervigrasvöll á Hlíðarenda. Skráning í Valshlaupið fer fram hér á hlaup.is og opnar fljótlega.Við hvetjum hlaupara til að taka þátt í þessu skemmtilega hlaupi en í fyrra voru þátttakendur á annað hundraðið. Ástæða er til að vekja athygli á því að boðið er upp á tvær vegalengdir, 10 km og 3 km, því hentar hlaupið einstaklega vel fyrir fjölskyldur. Nánari upplýsingar um Valshlaupið er að finna á hlaup.is
birt 07. september 2015