Valshlaupinu frestað vegna framkvæmda í Öskjuhlíð

birt 14. maí 2014

Búið er að fletta malbik af stígum í Öskjuhlíðinni.Valshlaupinu 2014 sem fyrirhugað var 16. maí næstkomandi hefur verið frestað um óákveðinn tíma þar sem búið er að fjarlægja malbikið af göngustígnum meðfram Öskjuhlíðinni. Ætlunin er að bíða þar til stígurinn er tilbúinn og koma hlaupinu síðan fyrir í annars þéttri keppnisdagskrá sumarsins eða haustsins. Þeir sem eru þegar búnir að forskrá sig fá að sjálfsögðu endurgreitt.