Velja landslið á HM í utanvegahlaupum

birt 06. desember 2018

Þátttakandi í víðvangshlaupaseríu Framfara.Frjálsíþróttasamband Íslands hyggst senda landslið, karla og kvenna, til keppni á Heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum sem fram fer laugardaginn 8. júní 2019 í Miranda do Corvo (Coimbra, Portúgal).  Áhugasömum hlaupurum er bent á valreglur FRÍ þar sem farið er yfir forsendur fyrir vali í landslið á vegum FRÍ.Umsóknum skal skila til Langhlaupanefndar FRÍ á netfangið langhlaupanefnd@fri.is fyrir 7.janúar 2019. Tilkynnt verður um valið eigi síðar en 15.janúar 2019. Nánari upplýsingar  um HM í utanvegahlaupum má finna á má finna á heimasíðu skipuleggjenda.

Heimild: Fri.is. 
Mynd fengin að láni af Fésbókarsíðu Framfara.