Verðin að hækka í Reykjavíkurmaraþoni eftir helgi

birt 14. mars 2015

Verð í Reykjavíkurmaraþonið sem fram fer í ágúst i hækkar á mánudaginn næstkomandi, 16. mars. Þvi er um að gera að skrá sig sem fyrst enda hægt að spara töluverðar fjárhæðir t.d. ef skrá á heila fjölskyldu.  Á vef hlaupsins má skoða verðskrá.Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2015 fer fram laugardaginn 22.ágúst og líkt og undanfarin ár eru sex vegalengdir í boði.Þá eru utanvegahlauparar minntir á að verð í Laugavegshlaupið hækkar þann 31. mars næstkomandi. Hlauparar hafa því örfáar vikur til að hlaupa í sig kjark til að skrá sig í þetta krefjandi hlaup.is. Skráning í bæði hlaupin fer fram á maraþon.is.