Ágætu félagar
Laugardaginn 27. febrúar kl. 15, strax að afloknu Frjálsíþróttaþingi ætla Framfarir - Hollvinafélag Millivegalengda- og langhlaupara, að veita verðlaun fyrir Víðavangshlaupaseríu Framfara og New Balance 2009. Verðlaunaafhendingin fer fram í fundaraðstöðu við Ásvallalaug, Ásvöllum 2 í Hafnarfirði. Allir sem þátt tóku í hlaupaseríunni eru hvattir til að mæta og gleðjast með verðlaunahöfunum.
Fyrir hönd Framfara,
Fríða Rún Þórðardóttir, formaður