Framfarir, hollvinasamtök millivegalengda- og langhlaupara vilja vekja athygli á víðavangshlaupi sem haldið verður nú á laugardaginn kl.11 í Öskjuhlíð. Framfarir hvetja sérstaklega börn, unglinga og fjölskyldufólk til þátttöku.
Á staðinn mætir enginn annar en Kári Steinn Karlsson, nýbakaður Íslandsmethafi í maraþonhlaupi og komandi Ólympíufari og mun hann veita eiginhandaráritanir og gefa keppendum góð ráð.
Skráning er við Perluna fyrir hlaup og kostar þátttakan 500 kr fyrir fullorðna en frítt er í hlaupið fyrir 16 ára og yngri. Framfarir vilja sérstaklega hvetja yngri kynslóðina til þátttöku sem og fjölskyldufólk. Vegalengdir eru 1 km og 4 km í skemmtilegu landslagi. Útdráttarverðlaun. Allir velkomnir, afi og amma líka.