Víðavangshlaupi ÍR sem ávallt er haldið á sumardaginn fyrsta hefur verið frestað til 4. júní í ljósi Covid 19. Þetta kemur fram á Fésbókarsíðu hlaupsins og þar segir jafnframt að hlaupið hafi aldrei fallið niður en verið frestað þrisvar í rúmlega aldarlangri sögu hlaupsins. Hlaup.is hvetur alla hlaupara til að halda áfram að hreyfa sig og hlaupa en ávallt í samræmi við tilmæli yfirvalda hverju sinni.
uppfært 25. ágúst 2020