Víkinga vantar þjálfara - ert þú rétti aðilinn?

birt 22. apríl 2015

Skokkhópur Víkings er með þeim öflugri á landinu.Almenningsíþróttadeild Víkings auglýsir eftir 2-3 þjálfurum til að sjá um þjálfun hjá skokkhópi Víkings og hjólahópi Víkings. Einnig leitar deildin að áhugasömum þjálfara til að koma af stað ungliðahópi deildarinnar og sjá um fjölbreytta þjálfun fyrir 15-20 ára ungmenni. Hóparnir æfa allir tvisvar sinnum í viku undir stjórn þjálfara.Almenningsíþróttadeild Víkings var stofnuð árið 2010 og hefur það markmið að bjóða upp á fjölbreytta og einstaklingsmiðaða þjálfun fyrir almenning.

Starf þjálfara deildarinnar snýst um að hafa umsjón með æfingum og útbúa áætlanir fyrir iðkendur til að fylgja eftir markmiðum sínum. Auk þess eiga þjálfarar að veita faglega ráðgjöf um þjálfun og hreyfingu.

Æskilegt er að þjálfarar deildarinnar hafi lokið námi í íþróttafræðum. Auk þess eru góðir skipulagshæfileikar og hæfni í mannlegum samskiptum skilyrði.

Nánari upplýsingar um störfin gefur Bjarney þjálfari deildarinnar (S. 696-3984) eða Tonie formaður deildarinnar (S. 8980698). Áhugasamir sendi umsókn og ferilskrá á almenningur@vikingur.is. Umsóknarfrestur er til 1.maí nk.

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á heimasíðu almenningsíþróttadeildar Víkings.
Einnig má lesa umfjöllun um starfsemi hópsins á hlaup.is.