Viltu gerast pistlahöfundur á hlaup.is?

birt 10. nóvember 2017

Hlaup.is er í leit að pistlahöfundum sem eru tilbúnir að láta gamminn geysa um allt sem sem tengist hlaupum. Skilyrði er að viðkomandi sé bæði vel ritfær og áhugasamur um okkar ástkæra áhugamál, hlaupaíþróttina. Margir hlauparar skrifa um hlaup bæði á Facebook og á bloggsíður, við hvetjum slíka ritfæra hlaupara sérstaklega til að hafa samband við okkur.

Stefán Gíslason, hlaupafrömuður, hefur nú um skeið verið fastur pistlahöfundur á hlaup.is og tekið á ýmsum skemmtilegum hliðum hlaupanna. Vinsældir pistla Stefáns eru töluverðar enda eru efnistök hans einkar frumleg og áhugaverð.

Taktu þátt í að auka fjölbreytnina í íslenska hlaupasamfélaginu og um leið hjálpaðu okkar að skapa enn betri hlaup.is.

Áhugasamir hafi samband við heimir@hlaup.is eða torfi@hlaup.is.