Tilkynning:
Í byrjun mars nk. ætlum við félagarnir til Túnis og taka þar þátt í 112km eyðimerkurhlaupi, hlaup sem kennt er við Sahara-eyðimörkina og hefur verið hlaupið sl. 15 ár.
Í framhaldi af þessu ákváðum við félagarnir að láta gott af okkur leiða og reyna með einhverju móti að styrkja gott málefni. Það er klárlega mikil þörf fyrir samfélagslega aðstoð eins og staðan í þjóðfélaginu er og í þetta skiptið ákváðum við að leggja Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur lið okkar.
Styrkir eru lagðir beint inn á reikning hjá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og geta áhugasamir notfært sér upplýsingar hér að neðan og munum að margt smátt gerir eitt stórt í þessu samhengi !
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
Hátúni 12, 105 Reykjavík
Banki 101 26 35021 kt. 470269-1119
Þess má til gamans geta að við Birgir ásamt fimm öðrum galvöskum félögum söfnuðum um 300þús fyrir Umhyggju / langveik börn í fyrra.
Við settum m.a. upp Facebook-síðu sem fengið hefur mjög góðar undirtektir.
Ágúst Guðmundsson og Arnaldur Birgir Konráðsson