Viltu prófa að hlaupa einn legg í Fire and Ice Ultra hlaupinu ?

birt 27. ágúst 2013

Fire and Ice Ultra 250 km fer fram 25. ágúst - 1. september 2013.

All Iceland ltd., í samstarfi við Race Adventure skipuleggur þátttöku í Fire and Ice Ultra hlaupi sem haldið verður á Íslandi 25. ágúst nk. í Vatnajökulsþjóðgarði og stendur yfir í 7 daga. Hlaupnir verða 250 km (26. ágúst - 31. ágúst) og er dagleiðin frá 20 km - 60 km. Hlaupið er frá rótum Vatnajökuls, meðfram Jökulsá á Fjöllum og endað í Ásbyrgi.

Áveðið hefur verið að bjóða Íslendingum að taka þátt og hlaupa dag/daga og gefst því frábært tækifæri að kynnast hlaupi af þessari gerð. Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við Jórunni Jónsdóttir jorunn@all-icleand.co.uk sími +447748011050.

Þess má geta að ein fremsta ofurhlaupakona Breta tekur þátt í hlaupinu. Upplýsingar um hana má finna á: http://www.sharongayter.com/