Valur skokk

Reykjavík

Æfingar hjá Valur skokk eru sem hér segir:

  • Þriðjudaga kl. 17:30, frá Hlíðarenda (hittumst í anddyrinu)
  • Fimmtudagar kl. 17:30, frá Hlíðarenda (hittumst í anddyrinu)
  • Laugardagur kl. 9:00, frá Hlíðarenda, nema annað sé ákveðið

Yfir vetrarmánuðina þá bætist við æfing í Laugardalshöllinni á mánudagskvöldum kl. 19:30.

Við erum hlaupahópur í alfaraleið með náttúruna í bakgarðinum hjá okkur sem við nýtum vel ásamt því að hlaupa á malbiki.

Við tökum ávallt vel á móti nýjum andlitum og hægt að komast í samband við okkur gegnum facebook hóp Vals skokks: https://www.facebook.com/Valurskokk

Meðlimir fá aðgang að sérstökum lokuðum hóp þar sem að þjálfari leggur fram vikuplan, viku fyrir viku út frá markmiðum hópsins hverju sinni.

Það eru allir velkomnir að koma og máta hópinn, hlökkum til að sjá ykkur.

Umfjöllun hlaup.is um Val Skokk

Viðtal hlaup.is við Geir Jóhannsson úr Val Skokk

Uppfært 19. janúar 2026