Feðginin Ágúst Kvaran og Melkorka Árný Kvaran tóku þátt í hlaupum á vegum Andorra Ultra trail (http://www.andorraultratrail.com/index.php?lang=ca) sem fóru fram í Andorra 5. - 9. júlí, 2017
Andorra Ultra trail hlaupin (233 km (Euforia), 170km (Ronda dels cims), 112 km (Mitic), 83 km (Celestrail), 42.2 km (maraþon) og 10km(Solodaritrail)) sem eru haldin ár hvert um þetta leyti árs, eru annáluð fyrir hátt erfiðleikastig hvað hlaupaleiðir varðar. Leiðirnar eru brattar og grýttar að stórum hluta í ca 1000 - 3000m hæð yfir sjávaramáli innan landamæra Andorra í Pyreneafjöllunum. Allt að 500 hlaupurum er hleypt í hvert hlaup.
Ágúst tók þátt í hlaupinu "Celestrail" (83 km/5000 m samanlögð hækkun sem varð 90 km eftir skipulagsbreytingu vegna eldingahættu) og hafnaði í 109. sæti í heild af 465 sem hófu hlaupið (288 kláruðu) og fagnaði 1. sæti í sinum aldursflokki (V3; 60 - 69 ára). Rauntími Ágústs var 17 klst og 17 mínútur en leiðréttur/endurreiknaður eftir skipulagsbreytingar vegna eldingahættu var 17 klst og 37 mínútur. 410 hófu hlaupið; 289 kláruðu (hátt í 40 % afföll í heildina; 50 % afföll í aldursflokki Ágústs!
Að sögn Ágústs var þetta eitt erfiðasta hlaup sem hann hefur tekið þátt í hvað varðar hlaupaslóðina enda enda Andorra Ultra hlaupin þekkt fyrir það: mjög grýtt og bratt að stórum hluta og óvenju há afföll.
Melkorka tók þátt í Solodaritrail (10 km, 750m samanlögð hækkun; án tímatöku). Hún hafnaði í öðru sæti kvenna.