Sigurbjörg Eðvarðsdóttir setti glæsilegt Íslandsmet í 50 ára flokki kvenna í Amsterdam maraþoni þegar hún hljóp á sínum besta tíma, 3:09:08. Árangur hennar er jafnframt besti tími íslenskra kvenna í maraþonhlaupi í ár. Ef ég man rétt þá hljóp Sigurbjörg sitt fyrsta maraþon ekki fyrr en eftir árið 2000. Fram að því hafði hún tekið þátt í fjölda ára í 10 km og hálfmaraþoni. Spurði hana einhvern tíma út í þetta á tíunda áratugnum og þá sagði hún mér að hún og maður hennar, Remi Spillaert, dveldu gjarnan meginpart hvers sumars á æskuslóðum hans í Frakklandi. Á sumrin væri of heitt til að stunda mikil langhlaup en þess í stað hjóluðu þau mikið. Bestu hlaup Sigurbjargar á þeim árum voru því gjarnan í byrjun sumars. Á þessu fyrirkomulagi hefur greinilega orðið breyting á síðustu árum þar sem Sigurbjörg hefur verið að æfa og keppa með góðum árangri hér heima yfir sumartímann.
Ásdís Káradóttir, náði einnig mjög athyglisverðum tíma (3:19:21) í Amsterdam. Þó svo ég hafi ekki undirbúið hana fyrir þetta hlaup þykist ég eiga dálítið í henni þar sem ég þjálfaði hana um árabil fyrir og um 2000 og fékk hana til að prófa almenningshlaup. Man að ég þurfti að beita hana nokkrum fortölum - hún hélt lengi fast í að hlaup sín væru bara til gamans. Nokkrum árum seinna hafði hún samband við mig og bað um æfingaáætlun fyrir Stokkhólmsmaraþonið 2006, sem hún hljóp svo á 3:46. Bæting Ásdísar núna er stórgóð því í millitíðinni er hún búin að eignast barn. Allt hægt ef viljinn og eljusemin eru fyrir hendi.
Athygli mína vakti einnig gott hlaup hjá Frosta Hallfríðarsyni (3:00:51) sem er aðeins 24 ára. Hef ekki séð hann hlaupa og veit ekki til þess að hann eigi sér mikla forsögu í hlaupum. Kannski er þarna á ferðinni framtíðarefni í maraþonhlaupi. Í samantekt úrslita Íslendinga í Amsterdam vantar Bjarna Ármannsson sem bætti sinn fyrri árangur um 5 mín., hljóp á 3:16:48.
Ég bjóst við að minn gamli FH-félagi Steinn Jóhannsson (1968) myndi ógna Íslandsmeti mínu í 40 ára flokki í Frankfurt. Hálfmaraþonið hans í RM (1:16:22) og miklar æfingar um langan tíma gáfu væntingar um það. Fyrri hlutinn var góður (1:18:48) en síðan virðist hafa dregið af Steini og lokatíminn var 2:45:27. Samt sem áður næstbesti maraþontími karla á Íslandi í ár. Hugsanlega hafa sundæfingar og hjólaæfingar ekki skilað sér fyrir maraþonið, en Steinn hefur lagt stund á þríþrautarkeppni og keppni í sundi. Það er einu sinni svo að til þess að hlaupa vel verður aðaláherslan að vera á hlaupaæfingar. Gott alhliðaform er hins vegar mikilvægt til að ná góðum árangri í þríþraut. Steinn ætti að hafa alla möguleika á að taka þetta met á næstu árum.
Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ, bætti sig einnig vel í Frankfurt (3:16:36) þrátt fyrir að hafa verið í spennu með að komast í tæka tíð eftir stíf fundarhöld á þingi ASÍ dagana á undan.