Adidas Boost 2024 - Vídeó, myndir og úrslit

uppfært 12. ágúst 2024

Adidas Boost hlaupið fór fram miðvikudaginn 31. júlí. Hlaupið er frá Rafstöðvarbrekkunni í Elliðaárdalnum upp og niður Elliðaárdalinn, inn í Fossvogsdalinn og endað við Rafstöðina í Elliðaárdalnum. Hlaupið er 10 km á flatri og hraðri braut. Aðstæður voru síðri en oft áður, töluverð rigning en þó nokkuð hlýtt.

Hlaup.is var á staðnum og tók vídeó af hlaupurum í Fossvogsdalnum eftir 5 km. Vídeóin má sjá hér fyrir neðan. Við tókum einnig myndir af hlaupurunum á sömu stöðum sem eru birtar á hlaup.is. Vissir þú að með því að skrá þig inn á Mínar síður hlaup.is með rafrænum skilríkjum, þá getur þú merkt allar myndir af þér og safnað á prófílinn þinn? Þú getur einnig styrkt hlaup.is með því að kaupa mynd.

Hlauparar eftir 5 km - Fyrri hópur

Hlauparar eftir 5 km - Seinni hópur