Hleðsluhlaupið Götuhlaup ársins 2025 - Viðtal við hlauphaldara

uppfært 12. mars 2026

Hleðsluhlaupið var valið Götuhlaup ársins 2025 annað árið í röð og við tókum viðtal við tvo af aðstandendum hlaupsins, þau Jóhann Guðjónsson og Sirrý Þorgeirsdóttir.

Ástæður fyrir velgengni hlaupsins

Hlauphaldarar telja að gott samstarf við traustan samstarfsaðila, MS sé stór hluti af velgengni hlaupsins. En einnig góð og flott vinna stórs hóps sjálfboðaliða. Um 50 manns vinna á hlaupdegi sem brautarverðir og við utanumhald.

Það sem sker hlaupið úr frá öðrum

Það sem gerir Hleðsluhlaupið einstakt er mikil stemmning og hvatning í brautinni með fjölda brautarvarða alla leiðina. Brautin er einnig talin auðveld og hröð og hentar því öllum, bæði byrjendum og lengra komnum. Einnig gerir það auðvelt að þjónusta sem flesta.

Aðstaðan er líka góð og almennt er góð stemning í hlaupinu. Það hefur verið mikill stöðugleiki í hlaupinu í gegnum árin; fólk veit að hverju það gengur. Samt reyna skipuleggjendur stöðugt að bæta sig og viðhalda góðum standard ár frá ári.

Markhópur og áhrif

Hlaupið er haldið af almenningsdeild innan Víkings og reynir markvisst að höfða til allra. Markmiðið er að ná til bæði hlaupara sem eru vanir og þeirra sem eru að taka sín fyrstu skref. Einnig er lögð er áhersla á að ná til fólks í hverfinu og annars staðar frá sem er að byrja í hlaupum.