Mýrdalshlaupið var valið Utanvegahlaup ársins 2025 og við ræddum við Fjalar Hauksson einn af aðstandendum hlaupsins um ástæður fyrir velgengni hlaupsins og hvort einhverjar breytingar væru fyrirhugaðar á hlaupinu í ár.
Ástæður fyrir velgengni hlaupsins
Fjalar sagði að stórkostleg hlaupaleið og náttúra væri meðal annars ástæðan fyrir velgengni hlaupsins. Einnig væru skipuleggjendur sjálfir hlauparar og legðu mikið upp úr skipulagi. Þeir væru „skipulagsfíklar“ og legðu metnað í að halda hlaup fyrir aðra hlaupara.
Hlaupið er fjölskylduhobbí og það skín í gegn í stemmningunni hjá hlaupurum og einnig meðal sjálfboðaliða. Veðrið var líka einstaklega gott á síðasta ári.
Bein útsending
Bein útsending var frá hlaupinu í fyrra og lukkaðist það mjög vel. Margir sem ekki komust í hlaupið fylgdust með útsendingunni heima. Mikið var lagt í útsendinguna með drónum og fólki á hjólum með myndavélar.
Framtíðarplön
Áherslan verður áfram á að gera núverandi vegalengdir, 10 km og 21 km, vel. Haldið verður áfram með beina útsendingu og möguleiki er á að fá alþjóðlegar hlaupastjörnur til að taka þátt aftur, líkt og gert var í fyrra.
Aðalmarkmiðið er samt að gera vel það sem verið er að gera nú þegar.
