Viðtal við Örvar Steingrímsson um Vatnsendahlaupið sem lenti í þriðja sæti í valinu á Utanvegahlaupi ársins 2025.
Um hlaupið
Vatnsendahlaupið, sem Hlaupahópur HK hefur umsjón með, var haldið í annað sinn í fyrra og reyndist mikill áhugi er fyrir hlaupinu. Hugmyndin með hlaupinu var að kynna svæðið sem er í „bakgarðinum“ hjá skipuleggjendum, en svæðið er við hliðina á Heiðmörk en ekki eiginlegur hluti af henni. Örvar býr sjálfur á svæðinu og hefur hlaupið mikið á þessum stígum.
Vegalengdin er 10 kílómetrar, sem er talin aðgengileg fyrir alla og laðar að marga sem eru ekki vanir að hlaupa í utanvegahlaupum.
Framtíðarþróun Vatnsendahlaupsins
Aðspurður sagði Örvar að það væri vilji til að bæta við lengri vegalengd, en það væri flókið vegna merkinga og brautarvarða og í bili verður haldið í núverandi fyrirkomulag. Næsta skref er líklega að bæta við styttri vegalengd, hugsanlega krakkahlaupi.
