Viðtal við Andreu Kolbeinsdóttir Götu- og brautarhlaupari ársins 2025 í flokki kvenna

uppfært 15. febrúar 2026

Andrea Kolbeinsdóttir var valin Götu- og brautarhlaupari ársins 2025 í flokki kvenna af lesendum hlaup.is. Andrea er stödd í Ástralíu og gat því ekki verið viðstödd verðlaunaafhendinguna. Hlaup.is ræddi við á Teams fljótlega eftir verðlaunaafhendinguna þar sem hún fór yfir síðasta ár og vinbrigðin á því ári, markmið og plön á þessu ári, persónulegar aðstæður núna ásamt því gefa hlaupurum nokkur góð ráð.

Upprifjun ársins 2025

Andrea tók þátt í maraþoni í Kaupmannahöfn í maí og lýsir hlaupinu sem „hræðilegu“ og langt frá væntingum. Fékk í magann snemma í hlaupinu (eftir 4 km) og þurfti að stoppa nokkrum sinnum. Tíminn var þó ágætur miðað við aðstæður, en hún hafði ætlað að hlaupa meira en tíu mínútum hraðar.

Andrea tók einnig þátt í heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum með íslenska landsliðinu þar sem hún hljóp 82 km leið en það gekk heldur ekki eftir væntingum. Upplifði að klúðrið í Kaupmannahöfn hafi haft neikvæð áhrif á restina af árinu, skapað pressu og dregið úr gleðinni við hlaupin.

Andrea tók síðan þátt í Kosciuszko hlaupinu í Ástralíu, sem er 50 km utanvegahlaup og hluti af UTMB seríunni. Hún lýsti þessu sem besta hlaupi ársins og er ánægð með að hafa unnið alþjóðlegt hlaup. Þetta hjálpaði henni að enda árið á bjartari nótum eftir erfiðleikana fyrr á árinu.

Andrea er í heildina ekki sátt með árið 2025 þótt hún hafi lært mikið af því. Hún gerir miklar kröfur til sín en telur sig hafa endurstillt sig fyrir 2026 og er bjartsýn á það.

Framtíðaráform fyrir árið 2026

Helstu hlaup Andreu á þessu ári eru:

  • Bluetrail á Tenerife (47 km): Í lok mars, sem undirbúningur fyrir EM.
  • EM (50 km): Í byrjun júní, keppir með íslenska landsliðshópnum.
  • Íslensk hlaup: Skráð í Laugaveginn og Mýrdalshlaupið.
  • Odyssey  Trail Run: Í byrjun september
  • Maraþon í Valencia: Í byrjun desember, þar sem hún ætlar í sérstaka „maraþonblokk“ til að undirbúa sig.

Persónulegar aðstæður

Andrea dvelur nú í Ástralíu til að heimsækja ástralskan kærasta sinn lýsir æfingaaðstæðum í Ástralíu sem frábærum. Hún miðar við að koma heim miðjan mars, en stoppa á Tenerife á leiðinni til að keppa í Bluetrail. Andrea miðar við vera á Íslandi og í Evrópu eftir það hlaup. Kærastinn mun koma í heimsókn til hennar þannig að hún gerir ekki ráð fyrir að fara til Ástralíu aftur á þessu ári.

Góð ráð fyrir hlaupara
  • Félagsskapur: Andrea segir að mikilvægt fyrir hlaupara sé að finna sér hóp eða félagsskap til að æfa með, félagsskapurinn skipti miklu máli
  • Gæðaæfingar: Byrja gæða- og hraðaæfingar rólega. Hugsa um fyrstu endurtekninguna eða sprettinn sem hluta af upphitun. Auka hraðann jafnt og þétt þannig að síðasti spretturinn sé sá hraðasti. Þetta hjálpar andlega, þar sem maður endar æfinguna sterkt í stað þess að byrja of hratt og gefast upp.