Viðtal við Baldvin Þór Magnússon - Götu- og brautarhlaupari ársins 2025 í flokki karla

uppfært 14. febrúar 2026

Baldvin Þór Magnússon var valinn Götu- og brautarhlaupari ársins 2025 í flokki karla af lesendum hlaup.is. Baldvin vann þennan flokk líka á síðasta ári.

Hlaup.is náði tali af honum fyrir verðlaunaafhendinguna áður en hann fór heim til sín í Bretlandi og Baldvin sagði okkur frá síðasta ári, hvernig hann undirbjó sig æfingalega sig fyrir Valencia hlaupið þar sem hann setti Íslandsmet í 10 km götuhlaupi, hvernig hann þjálfaði sig, uppáhaldsæfingunni sinni, ásamt því að segja okkur frá plönum sínum fyrir þetta ár. Hann deildi svo með okkur hollráðum fyrir hlaupara.

Íslandsmet í 10 km hlaupi

Baldvin setti nýtt Íslandsmet í 10 km hlaupi (27:40) í Valencia í janúar 2026  og bætti sitt eigið met um mínútu. Hann hafði íhugað að taka þátt árið áður en ákvað þá að einbeita sér að innanhússtímabilinu og EM innanhúss. Ákvörðunin um að keppa í Valencia árið 2026 var tekin í júlí 2025 og var markmiðið að ná EM lágmarkinu í 10 km hlaupi og prófa sig áfram í lengri vegalengd eftir að hafa einbeitt sér að 3.000 og 5.000 metra hlaupum.

Bæting og æfingar

Tímar Baldvins í 10 km hlaupi hafa þróast frá 2023 þannig að 2023 setti hann met 28:51, 2025 hljóp hann á 28:37 og svo gerir hann risabætingu á metinu í janúar 2026, 27:40.

Bætingin skýrist af gríðarlega góðum æfingum í 3-5 mánuði fyrir hlaupið og breyttum áherslum hjá Baldvini.

  • Hann tók út undirbúning fyrir 3.000 metra hlaup, sem er mjög krefjandi, og einbeitti sér meira að þröskulds- og tempóæfingum.
  • Hann hélt þó áfram með brekkuspretti og aðrar hágæðaæfingar.

Uppáhaldsæfingin hans er þröskuldsæfing, t.d. 10x1000 metrar (eða 10x3 mínútur) með einnar mínútu hvíld á 3:00/km hraða.

Æfingaálag og atvinnumennska

Baldvin æfir mikið og yfirleitt 12-13 sinnum í viku. Venjulega hleypur hann tvisvar á dag, nema á dögum þegar hann tekur langan túr (þá hleypur hann einu sinni) og stundum einn auka dag með einni æfingu sem hvíldardag.

Meðaltal síðustu mánaða var rúmlega 160 km á viku. Í vikum með stórum æfingum fer magnið upp í nálægt 180 km.

Baldvin gerir ekkert annað en æfa hlaup og er atvinnumaður í hlaupum síðan hann útskrifaðist úr háskóla 2023. Hann fjármagnar sig með styrkjum og samstarfi við ýmsa aðila.

Styrktaræfingar og teygjur

Við spurðum Baldvin aðeins út í það hvernig hann fléttaði styrktaræfingar og teygjur inn í æfingarútínuna sína. Hann sagði að undanfarin tvö ár hafi hann breytt nálgun sinni á styrktaræfingar.

Núverandi styrktarþjálfari hans er sjúkraþjálfari og áherslan er á að fyrirbyggja meiðsli og vinna í eymslum. Áður var meiri áhersla á frammistöðu (performance) með þyngri lyftingum, sem honum fannst ekki skila sér að fullu.

Hann tekur ennþá æfingar eins og hnébeygju (50 kg) en leggur mikla áherslu á kvið- og bakæfingar (core) og æfingar til að virkja litlu vöðvana.

Hann gerir ekki mikið af hefðbundnum kyrrstöðuteygjum (static stretches) , nema eitthvað sé sérstaklega stíft og leggur þeim mun meiri áherslu á hreyfiteygjur og er með fasta rútínu fyrir allar gæðaæfingar, 4-5 sinnum í viku.

Framtíðaráform

Baldvin hefur hugleitt maraþon, en er ekki að stefna á það í náinni framtíð. Hann telur sig ekki hafa náð fullri getu á braut ennþá og dreymir um að komast á Ólympíuleikana á braut. Plan fyrir árið 2026 er eftirfarandi:

  • Byrjaði á 10 km hlaupi í Valencia
  • Tekur nú stutta (tveggja vikna) hraðablokk með keppnum í 1.500 og 3.000 metrum.
  • Eftir stutta hvíld tekur hann langan undirbúning fyrir sumarið.
  • Aðalmarkmiðið er að toppa í júní/júlí/ágúst.
  • Stefnt er á að ná góðum 5.000 metra tíma í júní og vera tilbúinn fyrir EM utanhúss.
  • Hann hefur þegar náð EM lágmarki fyrir 10 km og stefnir á lágmarkið í 5 km líka.
  • Í haust íhugar hann annað 10 km hlaup eða prófa hálfmaraþon.

Hollráð fyrir almenna hlaupara
  • Verið róleg í því hversu hratt þið bætið ykkur.
  • Ef eymsli gera vart við sig er betra að draga aðeins úr álagi.
  • Það er betra að ná markmiði sínu (t.d. hlaupa 10 km undir 40 mínútum) aðeins seinna en að meiðast við að reyna að ná því of snemma.
  • Flestir hlauparar (99%) þurfa frekar að vinna í þolinmæðinni en að keyra sig áfram. Hlaup er þolinmæðisíþrótt.