Elísa Kristinsdóttir var valin utanvegahlaupari ársins 2025 í flokki kvenna af lesendum hlaup.is. Hlaup.is ræddi við hana eftir verðlaunaefhendinguna þar sem hún fór yfir bakgrunn sinn, markmið og plön á þessu ári ásamt því að segja okkur frá uppáhaldsæfingunni sinni.
Bakgrunnur og framfarir
Í viðtalinu við Elísu kom fram að hún ólst upp á Neskaupstað og æfði þar fótbolta og blak. Hún flutti í bæinn fyrir tvítugt og stundaði high-intensity þjálfun og CrossFit í átta ár. Hún byrjaði að hlaupa út frá þeim grunni en hafði ekki eiginlegan hlaupabakgrunn.
Henni komu eigin framfarir og góður árangur á óvart og hún er enn í sjokki eftir hverja keppni. Hún hefur mikla ánægju af því að hlaupa, keppa og vera hluti af hlaupasamfélaginu. Góður árangur er hvatning til að gera enn betur og hún telur sig eiga mikið inni og geta bætt sig á komandi ári.
Markmið og plön
Hlaupin eru í miklum forgangi núna og hana langar að sjá hversu langt hún getur náð. Aðalmarkmið ársins eru EM í byrjun júní, CCC, 100 km utanvegahlaup í Frakklandi, og innanlands er hún skráð í Laugavegshlaupið. Hún á eftir að púsla sumrinu saman en langar að bæta tímann sinn í Laugaveginum.
Æfingar
Uppáhaldsæfingar Elísu eru þröskuldsæfingar og langir fjallatúrar í góðum félagsskap.
