Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir var tilnefnd í flokki utanvegahlaupara kvenna fyrir árangur sinn á síðasta ári í utanvegahlaupum. Hafdís sagði okkur frá því sem stóð upp úr á síðasta ári og einnig frá hlaupaferlinum sínum. Hún fór svo yfir verkefnin á þessu ári og sagði okkur hvað hún gerði til að yfirvinna þær andlegu áskoranir sem sem hún stæði frammi fyrir í lengstu ultra hlaupunum.
Árangur á síðasta ári
Hafdís sagði að það sem stæði upp úr frá síðasta ári væri TOR330 hlaupið og það að hún hefði náð persónulegum metum (PB) í öllum vegalengdum á síðasta ári, sem var betri árangur en hún hafði búist við.
Hlaupaferill og þróun
Hafdís hefur verið að hlaupa í um 17-18 ár og hefur vaxið sem hlaupari með aldrinum og breytt um áherslur. Hafdís byrjaði í götuhlaupunum og fór svo meira yfir í utanvegahlaupin. Fór á námskeið hjá Hlaupasamfélaginu fyrir um 12-13 árum og hljóp sinn fyrsta Laugaveg og síðan þá hefur hún smám saman tekist á við lengri og hlaup með meiri hækkun.
Leiðarljósið er samt alltaf að gera það sem hún hefur gaman af og tilfinningin að fá að vera í fjöllunum í marga daga er ólýsanleg og skemmtileg.
Verkefni á yfirstandandi ári
Verkefni sem Hafdís er búin að skipuleggja á þessu ári er að taka þátt í sínum fyrsta Ironman í júní í Klagenfurt, Austurríki, í austurrísku Ölpunum. Síðan ætlar að skrá sig í TOR450, sem er lengri útgáfa af TOR330.
Andlegur undirbúningur fyrir ofurhlaup
Þegar við spyrjum Hafdísi hvernig hún undirbýr sig andlega fyrir þessi ótrúlega löngu hlaup sem hún er að taka þátt í, þá segir hún mikilvægt að geta leitað í ástæðuna fyrir því að maður skráði sig í það og viljinn og ástæðan fyrir þátttöku þurfa að vera nógu sterk til að komast í gegnum erfiðleikana. Í margra daga hlaupi, þegar aðeins nokkrir tugir kílómetra eru að baki en yfir 100 klukkustundir eftir, er mikilvægt að muna hvers vegna maður er þar. Ef ástæðan er ekki nógu brennandi sterk er auðvelt að gefast upp.
Æfingaundirbúningurinn er síðan ferðalagið sjálft. Að æfa fyrir svona langt hlaup er ekki ósvipað því að æfa fyrir styttri hlaup, en núna snýst það um að æfa miklu meira.
