Um hlaupið

  • Vegalengdir7 km, 12 km
  • Dagsetning27. nóvember 2021

Þjóðkirkjusöfnuðurnir í Kópavogi efna nú í áttunda sinn til aðventuhlaups á milli kirkna og kapella í Kópavogi í samvinnu við hlaupahóp Breiðabliks. Allir eru velkomnir í hlaupið, sem hefst kl. 9 laugardaginn 27. nóvember.

Safnast er saman í Kópavogskirkju, Siggi prestur tekur vel á móti okkur og sunginn er jólasálmur. Aðgangur er að salerni inni í kirkjunni. Einnig verður myndataka áður en lagt verður af stað. Hlaupinn verður rúmlega 11 km hringur.

ATH: ÞETTA ER SAMSKOKK, ALLIR SAFNAST SAMAN VIÐ KIRKJURNAR/KAPELLURNAR ÁÐUR EN HALDIÐ ER AF STAÐ AÐ NÆSTA ÁFANGASTAÐ.

Komið verður við á eftirfarandi stöðum á leiðinni: Kópavogskirkja - Hjallakirkja - Lindakirkja - Digraneskirkja - Sunnuhlíðarkapella - Kapellan líknardeildinni - Kópavogskirkja.

Auðvelt er að stytta í t.d. 7 km hring með því að sleppa Lindakirkju (sjá kort).

AÐ LOKNU HLAUPI ER BOÐIÐ UPP Á HEITT SÚKKULAÐI OG PIPARKÖKUR Í BORGUM - SAFNAÐARHEIMILI KÓPAVOGSKIRKJU.