Akrafjall Ultra verður haldið í annað sinn laugardaginn 17. maí 2025. Hlaupið er utanvegahlaup, en haldið á Akranesi og er því aðgengilegt fyrir flesta sem vilja prófa utanvegahlaup nálægt höfuðborgarsvæðinu.
Allar vegalengdir gefa ITRA stig og eru er því viðurkennd sem forhlaup fyrir Laugavegshlaupið sem dæmi.
Vegalengdir
Athugið að tímamörk eru í öllum vegalengdum, sjá lista hér fyrir neðan.
- 10 km og ca. 50-100m hækkun. Tímamörk í 10 km eru 3 klst.
- 20 km og ca. 650-750m hækkun. Tímamörk í 20 km eru 4 klst.
- 27 km og ca.1300-1400m hækkun. Tímamörk í 27 km eru 5 klst.
Skráning og gagnaafhending
Skráning fer fram hér á netskraning.is,
Nafnabreytingar og afhending gagna
Nafnabreytingar eru í boði fram að hlaupi. Hlaupanúmerin verða afhent (að öllum líkindum) fimmtudaginn 15. maí í Sportvörum frá 12-18 og í Ultraform Akranes Ægisbraut 29 frá 8:00 á hlaupdag. Ekki hægt að nafnabreyta frá og með 17. maí.
Staðsetning og tímasetning
Hlaupið verður ræst hjá UltraForm Akranesi að Ægisbraut 29 en endar á Akranesvelli.
Rástímar:
- 27 km - Ræsing kl. 09:00
- 20 km - Ræsing kl. 10:00
- 10 km - Ræsing kl. 11:00
Drykkjarstöðvar
Ein drykkjarstöð verður á bílaplaninu við Akrafjall sem er aðeins aðgengileg fyrir einstaklinga í 20 km og 27 km hlaupunum. Hlauparar í 20 km hlaupinu fara tvisvar í gegnum drykkjarstöðina, eftir 9,6 km og aftur eftir ca. 13,2 km. Hlauparar í 27 km hlaupinu fara þrisvar í gegnum drykkjarstöðina, eftir 9,6 km, eftir 16,4 km og loks eftir 21 km. Engin drykkjarstöð verður í brautinni fyrir 10 km.
Leiðarlýsing
Kort af hlaupaleiðunum eru neðst á þessari síðu. Athugið að 10 km, 20 km og 27 km eru í sitthvoru laginu (layer) og því þarf að velja hvaða kort er verið að skoða.
Athugið að hlaupið byrjar og endar ekki á sama stað.