Um hlaupið

  • Vegalengdir5 km, 10 km, Hálft maraþon
  • Dagsetning2. júlí 2026

Akureyrarhlaup hefur verið árviss viðburður í Íþróttalífi Akureyringa frá 1992. Hlaupið er styrkt af Akureyrarbæ, Heilsueflandi samfélagi og atNorth. Hlaup fyrir alla, unga sem aldna, byrjendur og lengra komna!

Skoðaðu myndir frá hlaupinu 2022.

Hlaupaleið

Boðið er upp á þrjár vegalengdir 5 km, 10 km og hálfmaraþon. Keppni í hálfmaraþoni er jafnframt Íslandsmeistaramót í greininni. Þar er keppt um Íslandsmeistaratitla í hálfmaraþoni karla og kvenna og einnig um Íslandsmeistara í aldursflokkum.
Rás- og endamark er við menningarhúsið Hof og er hlaupið um eyrina og meðfram ströndinni í átt að flugvellinum svo hlaupaleiðin er marflöt og vænleg til góðra afreka.

Allar vegalengdir eru löglega mældar og mun framkvæmd hlaupsins taka mið af reglum FRÍ um framkvæmd götuhlaupa svo árangur fæst skráður í afrekaskrá FRÍ.

21,1 km leiðin er 10 km hringurinn hlaupinn tvisvar að viðbættum 1,1 km.

Skráning

Forskráning er á netskraning.is.

Skráningargjöld eru eftirfarandi:

  • 5 km hlaup kr. 3.000
  • 10 km hlaup kr. 4.000
  • Hálfmaraþon kr. 6.000
  • 18 ára og yngri greiða aðeins 2.000 kr í allar vegalengdir.

Ef skráð er á keppnisdag hækka öll þátttökugjöld um 1.000 kr.

Dagskrá á hlaupdag
  • 16.00-19.00:  Afhending keppnisgagna í World Class við Strandgötu.
  • 19.00:           Fyrri ræsing í hálfmaraþoni, hlauparar sem reikna með að vera lengur en 1:50:00 að hlaupa
  • 19.30:           Seinni ræsing í hálfmaraþoni, hlauparar sem reikna með að vera fljótari en 1:50:00 að hlaupa
  • 20.05:           Ræsing í 5 og 10 km hlaupi
  • 20.20-22.00: Hlauparar koma í mark. Veitingar í boði á marksvæði. Hægt að fara í sturtu í Word Class
  • 22.00:           Tímatöku lýkur
  • 21.30-22.00: Verðlaunaafhending í World Class
Verðlaun

Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í öllum vegalengdum og verðlaunapeningar fyrir aldursflokka. Einnig verður dreginn út fjöldi útdráttarverðlauna.

Auk þess gefur Tplús peningaverðlaun kr. 75.000 fyrir ný brautarmet í öllum vegalengdum.

Aldursflokkar

Keppt er í eftirfarandi aldursflokkum:

  • 5km: 15 ára og yngri, 16-39 ára, 40-49 ára, 50 ára og eldri
  • 10km: 15 ára og yngri, 16-39 ára, 40-49 ára, 50 ára og eldri
  • Hálfmaraþon: 15 ára, 16-17 ára, 18–19 ára, 20–22 ára, 23–39 ára, 40–44 ára, 45–49 ára, 50–54 ára, 55–59 ára, 60–64 ára, 65–69 ára, 70–74 ára, 75–79 ára, 80–84 ára, 85–89 ára.
Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um hlaupið eru á heimasíðu UFA, á netfangi ufaeyrarskokk@gmail.com eða í síma 894-4243.