Um hlaupið

  • Vegalengdir9 km, 17,7 km, 53 km
  • Dagsetning3. ágúst 2024

Austur Ultra verður haldið í fjórða sinn þann 3. ágúst næstkomandi. Í Austur Ultra er hlaupið um land Stafafells í Lóni á Austurlandi, einnig þekkt sem Lónsöræfi. Svæðið er eitt stórkostlegasta og fjölbreytilegasta þversnið af íslenskri náttúru sem hægt er að komast í. Frá hálendismelum um grösugan dal óbyggðanna. Eftir litskrúðugum skriðum, hrikalegu jökulsárgljúfri og gróskumiklum birkiskógi.

Austurultra4
Frá hlaupaleiðinni í Austur Ultra
Vegalengdir

Þrjár vegalengdir eru í boði, 53 km, 18 km og 9 km. Rásmark allra vegalengda verður í Hvannagili. Þangað komast allir bílar og þar er einnig hægt að leggja bílum. Hvannagil er í um 10 mínútna keyrslu af þjóðvegi 1 og koma keppendur sér sjálfir að rásmarkinu.

Drykkjarstöðvar verða við Eskifellsbrú, Kollumúla og í Hvannagili. Endamark verður á tjaldstæðinu á Stafafelli og verður þar tónlist, grill og drykkir.

Austurultra hlaupaleið 2022
Hlaupaleiðin

Austur Ultra 53 km

Austur Ultra 18 km

Austur Ultra 9 km

Skráningar

Skráning er á netskraning.is.

Nánari upplýsingar

Vefsíða hlaupsins

Facebook síða hlaupsins.