Um hlaupið

  • Dagsetning19. september 2020

Bakgarður Náttúruhlaupa (Iceland Backyard Ultra) verður haldinn í fyrsta skiptið laugardaginn 19. september. Keppnin verður hefðbundið bakgarðshlaup og fer eftir ákveðinni uppsetningu og reglum (http://backyardultra.com/rules/). Hlaupin verður 6,7km hringur á hverjum klukkutíma. Sá sem hleypur flesta hringi er sá eini sem klárar hlaupið og stendur uppi sem sigurvegari. Til að klára hlaupið verður viðkomandi að klára síðasta hringinn einn. Allir hringir verða ræstir á heila tímanum og er mikilvægt að koma sér á ráslínu tímanlega fyrir hvern hring.

Hvað eru bakgarðshlaup (Backyard Ultra)?

Bakgarðshlaup eru tegund ofurhlaupa þar sem þátttakendur verða að hlaupa 6706m (4,167 mílur) á innan við klukkutíma. Hver hringur byrjar alltaf á heila tímanum. Eftir hvern hring má nota tímann sem er eftir af klukkutímanum til að hvílast og undirbúa sig fyrir næsta hring. Þetta er endurtekið á klukkutíma fresti þar til aðeins einn hlaupari er eftir í brautinni og klárar síðasta hringinn einn. Heildarvegalengd hlaupara sem klárar 24 hringi (24 klukkutímar) er 100 mílur (160,8km)

Náttúruhlaupahringurinn: Einnig verður hægt að keppa í einum hring (6,7km) með tímatöku og hefst sú keppni á sama tíma og Bakgarðurinn.

Facebook síða

facebook.com/icelandbackyardultra

Staðsetning

Elliðabær, Heiðmörk

Tímasetning

Keppnin hefst kl. 9:00, laugardaginn 19. september

Hlaupaleið

6,7 km hringur í Heiðmörk, byrjar og endar við Elliðavatnsbæ

Vegalengd

Þú hleypur eins marga hringi og þú getur!

Tímamörk

Engin tímamörk nema að klára hvern 6,7 km innan klukkutíma

Úrslit

Allir sem taka þátt í Bakgarðshlaupinu fá skráða fjölda hringja og vegalengdina sem þeir klára.

Verðlaun

Þátttöku-/DNF viðurkenning fyrir alla sem taka þátt og sérstök viðurkenning  fyrir þá sem klára 4 hringi (26,8km), 8 hringi (53,6km), 12 hringi (80,4), 15 hringi (100,5) og 24 hringi eða lengra (160,8km). Sá sem klárar Bakgarðshlaupið fær glæsileg verðlaun og viðurkenningu.

Drykkjarstöð og aðstaða fyrir hlaupara verður við Elliðavatnsbæ. Lögð verður áhersla á skemmtilega og fjöruga umgjörð allan daginn. Starfsfólk og sjálfboðaliðar Náttúruhlaupa verða til taks allan daginn fyrir þátttakendur í hvíldartímanum.

Verð
  • Einn hringur með tímatöku: 3.500 kr
  • Bakgarður Náttúruhlaupa:  8.500 kr

Innifalið í skráningu

Skráning er á https://netskraning.is/backyardultra/. Skráningu lýkur á miðnætti 18. september að því gefnu að hlaupið verði ekki orðið fullt (100 þátttakendur hámark í hvorri vegalengd). Skráningargjöld verða ekki endurgreidd en hægt að gera nafnabreytingar.

  • Keppnisnúmer, brautarvarsla og tímataka
  • Hressing og veitingar á drykkjarstöð og í lok hlaups
  • Þátttökuviðurkenningar

Fylgist með á Facebook síðu hlaupsins

facebook.com/icelandbackyardultra

Skipuleggjendur keppninnar

Náttúruhlaup og Arctic Running

Nánari upplýsingar veita:

Elísabet Margeirsdóttir (elisabet (at) natturuhlaup.is) og Helga María Heiðarsdóttir (helga (at) arcticrunning.is).