Þátttökugjald

  • 5 mílur - 16 ára og yngri 1.000 kr
  • 5 mílur - 17 ára og eldri4.000 kr
  • 10 mílur - 16 ára og yngri1.000 kr
  • 10 mílur - 17 ára og eldri4.000 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir8,045 km, 16,09 km
  • Dagsetning13. júní 2021
Sjá úrslit

Bláskógaskokk HSK verður haldið sunnudaginn 13. júní 2021 og hefst kl. 11:00.

Skráning

Hægt er að skrá sig á hlaup.is, sjá efst á þessari síðu. Forskráningu á hlaup.is lýkur föstudaginn 11. júní kl. 12:00. Eins er skráð við Fontana á Laugarvatni frá kl. 9 til 10:15 á hlaupadag.

Þátttökugjald
  • 4.000 kr fyrir 17 ára og eldri (fædd 2003 og fyrr)
  • 1.000 kr fyrir 16 ára og yngri (fædd 2004 og síðar)
  • 1.000 kr. að auki í rútufargjald fyrir 17 ára og eldri.

Ef fólk ætlar að tryggja sér far í rútu þarf að forskrá sig fyrir hádegi 11. júní.

Keppendur þurfa að mæta við Fontana á Laugarvatni þar sem þeir staðfesta skráningu og fá afhent keppnisnúmer frá kl. 9:00 á keppnisdag. Hlaupurum sem fara með rútu verður ekið í rútu frá Laugarvatni að rásmarki við Gjábakka (10 mílur) og á Laugardalvöllum (5 mílur) kl. 10:15.

Hlauparar fá frítt í Fontana að hlaupi loknu gegn framvísum hlaupanúmers, með fyrirvara um að fjöldatakmarkanir vegna COVID komi í veg fyrir að slíkt verði hægt.

Hlaupaleið

Hlaupið verður frá Gjábakka, austan Þingvallavatns eftir gamla Gjábakkavegi til Laugarvatns, sjá kort hér fyrir neðan.

Tvær drykkjarstöðvar eru á hlaupaleiðinni. Engin bílaumferð verður á hlaupaleiðinni, meðan á hlaupinu stendur.

Bláskógaskokk BLA2020 0431
Mynd frá Bláskógaskokkinu 2021
Vegalengdir

10 mílur (16,09 km) og 5 mílur (8,05 km) með tímatöku. Tímataka er með flögum.


Flokkaskipting

Bæði kyn.

  • 16 ára og yngri
  • 17-39 ára
  • 40-49 ára
  • 50-59 ára
  • 60-69 ára
  • 70 ára og eldri.

Verðlaun

Allir þátttakendur fá verðlaun. Sérverðlaun verða veitt fyrir fyrsta karl og fyrstu konu í hlaupinu í báðum vegalengdum. Verðlaunaafhending verður við endamarkið.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Ingvar Garðarsson í síma 482 2730 og 698 5730.