Bláskógaskokk HSK verður haldið sunnudaginn 14. júní 2026 og hefst kl. 11:00.
Sjá myndir frá hlaupinu 2020 hér á hlaup.is.
Skráning, þátttökugjald og afhending keppnisgagna
Skráning er opin á netskraning.is og eru þátttökugjöld eftirfarandi:
- 7.000 kr fyrir 17 ára og eldri (fædd 2009 og fyrr)
- 1.000 kr fyrir 16 ára og yngri (fædd 2010 og síðar)
Ef fólk ætlar að tryggja sér far í rútu þarf að forskrá sig fyrir kl. 18:00 föstudaginn 12. júní. Frítt er í rútuna.
Hlauparar fá frítt í Fontana að hlaupi loknu gegn framvísum hlaupanúmers.
Númer verða afhent í verslun Fætur Toga daginn fyrir keppnisdag. Keppendur fá -20% af öllum Brooks vörum i Fætur Toga þegar þeir sækja gögnin. Á keppnisdag þurfa keppendur að mæta við Fontana á Laugarvatni þar sem þeir fá afhent keppnisnúmer frá kl. 9:00. Hlaupurum sem fara með rútu verður ekið í rútu frá Laugarvatni að rásmarki við Gjábakka (10 mílur) og á Laugardalvöllum (5 mílur) kl. 10:15. Hlauparar fá frítt í Fontana að hlaupi loknu gegn framvísum hlaupanúmers.
Hlaupaleið
Hlaupið verður frá Gjábakka, austan Þingvallavatns eftir gamla Gjábakkavegi til Laugarvatns, sjá kort hér fyrir neðan.
Tvær drykkjarstöðvar eru á hlaupaleiðinni. Engin bílaumferð verður á hlaupaleiðinni, meðan á hlaupinu stendur.
Vegalengdir
10 mílur (16,09 km) og 5 mílur (8,05 km) með tímatöku. Tímataka er með flögum.
Flokkaskipting
Bæði kyn.
- 16 ára og yngri
- 17-39 ára
- 40-49 ára
- 50-59 ára
- 60-69 ára
- 70 ára og eldri.
Verðlaun
Allir þátttakendur sem ljúka hlaupunum fá verðlaunapening. Fætur Toga veita verðlaun fyrir fyrsta karl og fyrstu konu og kr. fimmtíu þúsund inneign fyrir brautarmet í báðum vegalengdum.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Ingvar Garðarsson í síma 482 2730 og 698 5730 og hsk@hsk.is
