Bláskógaskokk HSK verður haldið sunnudaginn 16. júní 2024 og hefst kl. 11:00.
Sjá myndir frá hlaupinu 2020 hér á hlaup.is.
Skráning
Hægt er að skrá sig á hlaup.is, sjá efst á þessari síðu. Forskráningu á hlaup.is lýkur föstudaginn 14. júní kl. 18:00. Eins er skráð við Fontana á Laugarvatni frá kl. 9 til 10:15 á hlaupadag.
Þátttökugjald
- 6.000 kr fyrir 17 ára og eldri (fædd 2007 og fyrr)
- 1.000 kr fyrir 16 ára og yngri (fædd 2008 og síðar)
Ef fólk ætlar að tryggja sér far í rútu þarf að forskrá sig fyrir kl. 18:00 föstudaginn 14. júní. Frítt er í rútuna.
Keppendur þurfa að mæta við Fontana á Laugarvatni þar sem þeir staðfesta skráningu og fá afhent keppnisnúmer frá kl. 9:00 á keppnisdag. Hlaupurum sem fara með rútu verður ekið í rútu frá Laugarvatni að rásmarki við Gjábakka (10 mílur) og á Laugardalvöllum (5 mílur) kl. 10:15.
Hlauparar fá frítt í Fontana að hlaupi loknu gegn framvísum hlaupanúmers.
Hlaupaleið
Hlaupið verður frá Gjábakka, austan Þingvallavatns eftir gamla Gjábakkavegi til Laugarvatns, sjá kort hér fyrir neðan.
Tvær drykkjarstöðvar eru á hlaupaleiðinni. Engin bílaumferð verður á hlaupaleiðinni, meðan á hlaupinu stendur.
Vegalengdir
10 mílur (16,09 km) og 5 mílur (8,05 km) með tímatöku. Tímataka er með flögum.
Flokkaskipting
Bæði kyn.
- 16 ára og yngri
- 17-39 ára
- 40-49 ára
- 50-59 ára
- 60-69 ára
- 70 ára og eldri.
Verðlaun
Allir þátttakendur fá verðlaunapening. Sérverðlaun verða veitt fyrir fyrsta karl og fyrstu konu í hlaupinu í báðum vegalengdum. Verðlaunaafhending verður við endamarkið.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Ingvar Garðarsson í síma 482 2730 og 698 5730.