Þátttökugjald

  • 3,3 km2.000 kr
  • 8,3 km3.000 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir3,3 km, 8,3 km
  • Dagsetning26. júlí 2024

Botnsvatnshlaup Landsbankans verður haldið föstudaginn 26. júlí kl. 18:00.

Staðsetning og tími

Hlaupið verður ræst föstudaginn 26. júlí og hefst kl. 18:00 við norðvestanvert Botnsvatn. Botnsvatn er ein af útivistarperlum Húsvíkinga og þar er að finna fjölbreytta náttúru og dýralíf, vatn, strönd og þægilegan göngustíg umhverfis vatnið.

Botnsvatnshlaup BOT2020 009
Hlauparar leggja af stað í Botnsvatnshlaupið 2020
Vegalengdir

Boðið er upp á 3,3 km og 8,3 km hlaup. Tímataka verður í báðum vegalengdunum frá timataka.net.

Leiðin
  • 3,3 km. Hefst við norðanvert Botnsvatn og farið er meðfram vatninu að norðanverðu og síðan niður Búðarárstíginn meðfram Búðará, fram hjá vatnsveitu og niður í Skrúðgarðinn á Húsavík, þar sem endamarkið er við Kvíabekk. Nokkur lækkun er frá Botnsvatni og niður í Skrúðgarð. Þægilegur stígur við allra hæfi í fallegu umhverfi.
  • 8,3 km. Hefst við norðanvert Botnsvatn, farinn er rúmlega einn hringur rangsælis um vatnið, síðan niður Búðarárstíginn meðfram Búðará og niður í Skrúðgarðinn þar sem endamarkið er við Kvíabekk.

Verðlaun

Fyrstu þrjár konur og karlar í lengra (8,3 km) hlaupinu fá verðlaun.

Skráning, verð og afhending hlaupagagna

Skráning fer fram hér á hlaup.is, sjá efst á þessari síðu og lýkur skráningu kl. 23:59 fimmtudaginn 25. júlí. Verð er kr. 2.000 fyrir 3,3 km og kr. 3.000 fyrir 8,3 km.

ATH! Afhending hlaupagagna fer fram í SMIÐJUNNI, Vallholtsvegi 8 (Farið inn í portið á bak við verslunina Heimamenn) frá kl. 16:30 á hlaupadag. Keppendur eru beðnir um að ná í gögnin tímanlega. Hægt verður að skrá sig á staðnum en þá hækkar gjaldið í 3.000 kr fyrir 3,3 km og 4.000 kr fyrir 8,3 km.

Verðlaunaafhending hefst við Kvíabekk í Skrúðgarðinum kl. 18:45.

Annað

Við endamarkið í Skrúðgarðinum á Húsavík verður boðið upp á drykki. Botnsvatn er um 2,5 km frá miðbæ Húsavíkur, þangað er góður akvegur (upp frá Ásgarðsvegi).  Þátttakendum er ráðlagt að leggja bílum upp við bílastæðið við norðurenda vatnsins, þar hefst hlaupið í ár. Skrúðgarðurinn er við miðbæ Húsvíkur. Aðkoma á bílum er um Fossvelli og svo inn Iðavelli þar sem eru fjöldi bílastæða. Þaðan eru einungis um 100 metra ganga að endamarki hlaupsins.

Nánari upplýsingar um Botnsvatnshlaup Landsbankans veitir Heiðar 866-7100.