Þátttökugjald

  • 10 km4.000 kr
  • Sprotahlaup 800m1.000 kr
  • 3 km - 15 ára og yngri1.000 kr
  • 5 km - 15 ára og yngri1.000 kr
  • 5 km hjólreiðar - 15 ára og yngri1.000 kr
  • 3 km - 16 ára og eldri2.000 kr
  • 5 km - 16 ára og eldri2.000 kr
  • 5 km hjólreiðar - 16 ára og eldri2.000 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir800 m, 3 km, 5 km, 10 km
  • Dagsetning10. ágúst 2024
Sjá úrslit Myndasafn úr hlaupinu

Hið árlega Brúarhlaup á Selfossi fer fram laugardaginn 10. ágúst 2024.

Vegalengdir

Hlaupavegalengdir eru 10 km, 5 km, 3 km skemmtiskokk ásamt 800 m Sprotahlaupi fyrir krakka 8 ára og yngri.

Einnig fer fram keppni í 5 km hjólreiðum (skemmtihjólreiðar, ekki hröð keppnisbraut). 
Allar hlaupaleiðir eru löggildar og mældar upp af viðurkenndum aðila. Tímataka er í öllum vegalengdum (flögur). Hlaupið er viðurkennt og vottað af Frjálsíþróttasambandi Íslands.

Tímasetningar og staðsetningar
  • Hlauparar í 10 km verða ræstir á árvegi við Sjúkrahúsið á Selfossi kl. 11:30
  • Hlauparar í 5 km hlaupi verða ræstir kl. 12:00 á árvegi við Sjúkrahúsið á Selfossi
  • Keppendur í 5 km hjólreiðum verða ræstir kl. 11:00 á árvegi við Sjúkrahúsið á Selfossi
  • Keppendur í 3 km skemmtiskokki verða ræstir í miðbæjargarði Selfoss kl. 11:30
  • Keppendur í 800m Sprotahlaupi verða ræstir í miðbæjargarði Selfoss kl. 12:30

Allir þátttakendur koma í mark í Sigtúnsgarðinum í miðbæ Selfoss.

Flokkaskipting og verðlaun

Flokkaskipting er í 5 km og 10 km hlaupi og eru veittir verðlaunapeningar fyrir 1.-3. sæti í hverjum aldursflokki og einnig fyrir 1.-3. sæti óháð aldri, karla og kvenna, í hvorri vegalengd.

Verðlaunapeningar eru veittir fyrir 1.-3. sæti í 3 km hlaupi og 5 km hjólreiðum, í karla og kvennaflokki.

Að auki verða dregin út útdráttarverðlaun, úr hópi keppenda og þeim heppnu afhent þau um leið og þeir koma í mark.  Verðlaunaafhending fer fram í miðbæjargarði Selfoss, við endamark hlaupsins, kl. 13:00.

Skráning og verð

Skráning fer fram hér á hlaup.is, sjá efst á þessari síðu, en einnig á hlaupdag frá kl. 9:00 í Landsbankanum á Selfossi. Forskráningu lýkur á netinu, föstudaginn 9. ágúst kl. 16.

Skráningargjöld í forskráningu:

  • 2.000 kr fyrir 16 ára og eldri í 3 km, 5 km og hjólreiðar
  • 1.000 kr fyrir 15 ára og yngri 3 km, 5 km og hjólreiðar
  • 1.000 kr í 800m krakka Sprotahlaup
  • 4.000 kr fyrir alla þátttakendur í 10 km hlaupi

Veittur er fjölskylduafsláttur þannig að hjón borga fullt gjald, fyrir sig og tvö börn 15 ára og yngri, en ef um fleiri börn er að ræða fá þau frítt. Alla fjölskyldumeðlimi verður að skrá á sama tíma og nota viðeigandi afsláttarkóða.

Eftirfarandi afsláttarkóðar eru notaðir fyrir fjölskylduskráningu hér á hlaup.is:

  • FJOLSK-A: 6.000 kr - Foreldrar taka þátt í 5 km (hlaup eða hjól) eða 3 km. Börn í 5 km (hlaup eða hjól), 3 km eða Sprotahlaupi
  • FJOLSK-B: 8.000 kr - Annað foreldri í 10 km en hitt foreldri í 5 km (hlaup eða hjól) eða 3 km. Börn í 5 km (hlaup eða hjól), 3 km eða Sprotahlaupi
  • FJOLSK-C: 10.000 kr - Báðir foreldrar í 10 km hlaupi. Börn í 5 km (hlaup eða hjól), 3 km eða Sprotahlaupi

Skráningargjöld eftir að forskráningu lýkur

  • 3.000 kr fyrir 16 ára og eldri í 3 km, 5 km og hjólreiðar
  • 1.500 kr fyrir 15 ára og yngri 3 km, 5 km og hjólreiðar
  • 1.500 kr í 800m krakka Sprotahlaup
  • 5.000 kr fyrir alla þátttakendur í 10 km hlaupi

Þeir sem ekki vilja fá bol merktan hlaupinu geta afþakkað hann í forskráningu og lækkar þá keppnisgjaldið um 500 kr. Í Sprotahlaupinu er bolir merktir Sprota og fá allir þátttakendur þar bol.  Ekki er hægt að afþakka bol í því hlaupi gegn lækkun keppnisgjalds eða ef þú vilt nýta þér fjölskylduafsláttinn.

Afhending keppnisgagna, er á hlaupdag í Landsbankanum á Selfossi, frá kl. 09:00. Allir þátttakendur fá við skráningu keppnisbol og verðlaunapening við komu í mark.

Annað

Allir keppendur fá frítt í sund eftir hlaup, í boði sveitarfélagsins Árborgar, gegn framvísun keppnisnúmers. Úrslit verða birt á hlaup.is og timataka.net. Frekari upplýsingar gefur Helgi Sigurður Haraldsson, helgihar@simnet.is og í síma 780-0403.

Skilmálar hlaupsins

Með því að senda inn skráningu í Brúarhlaupið leysi ég framkvæmdaraðila hlaupsins undan allri ábyrgð á tjóni, meiðslum eða veikindum sem ég, eða sá sem ég er að skrá, gæti orðið fyrir í hlaupinu/hjólreiðunum. Ég staðfesti einnig að ég er bæði andlega og líkamlega fær um að ljúka viðkomandi vegalengd sem ég skrái mig í.