Um hlaupið

  • Vegalengdir11,7 km, 23,4 km, 50,2 km
  • Dagsetning6. júlí 2024

Dyrfjallahlaupið er hlaupahátíð á Borgarfirði eystra þar sem boðið er upp á keppnisleiðir fyrir hlaupara á öllu getustigum.Við bjóðum upp á 50 km Ultra hlaup með 2600 m hækkun sem liggur um Loðmundarfjörð, Húsavík, Breiðuvík og Brúnavík og endar við smábátahöfnina Í Borgarfirði eystra. Einnig er boðið upp á 12 km og 24 km leiðir um Víknaslóðir sem er einstakt svæði með ljósum líparítfjöllum og skriðum, í bland við dökka og tignarlega basalttinda.

Dyrfjallahlaup Ultra 50 km

Vegalengd: 50 km - Heildarhækkun: 2567m - Heildarlækkun: 2620m - Hæsti punktur: 770m.y.s - Lægsti punktur: 4m. y.sm. - ITRA punktar: 2 punktur

Við hefjum leika á sama stað og 24 km leiðina, við brúnna sem liggur yfir Þverá innst inn í Borgarfirði. Þátttakendur  fara þaðan upp í Kækjudal eftir vel merktri leið upp með ánni og stefna að Kækjuskörðum. Þar uppi er efsti punktur leiðarinnar, 770 metrar og eins og gefur að skilja er útsýnið stórkostlegt þaðan. Nú liggur leiðin niður í Loðmundarfjörð þar sem er komið niður á vegslóðann þar og honum fylgt út fjörðinn og svo yfir Neshálsinn  til Húsavíkur. Þegar komið er niður að skála Ferðafélagsins er haldið áfram í átt að hinum magnaða Hvítserk eftir veginum og síðan er tekin hægri beygja sem kallast Gæsavatnaleið og haldið áfram eftir veginum sem liggur út Breiðuvík að gönguskála. Farið er yfir Stóruá í Breiðuvík á göngubrú. Frá Breiðuvík er hlaupið eftir gönguleið um gróið land og mela ofan Kjólsvíkur að Syðra-varpi (445 m). Þaðan er hlaupið ofan við Hvalvík og svo út Brúnavík niður að slysavarnaskýli. Þar sem hlaupaleiðirnar mætast. Vaða þarf Brúnavíkuránna sem er ekki mikið vatnsfall og er hún þveruð alveg niður við sjó. Frá Brúnavík tekur við stíf brekka fyrst áleiðis að Brúnavíkurskarði (354m). Hlaupið er þennan hluta leiðarinnar eftir gamalli reiðgötu sem er góð og mikið gengin. Frá Brúnavíkurskarði liggur leiðin niður að sjó og síðustu 400 metrana er hlaupið á malbiki að endamarki við Borgarfjarðarhöfn.

Drykkjarstöð er á tveimur stöðum á leiðinni, efst uppi á Neshálsi milli Loðmundarfjarðar og Húsavíkur og svo við Breiðavíkuskála með vatni og næringu.

Skyldubúnaður keppenda fer eftir veðri og vindum en allir þátttakendur eru krafðir um að vera með drykkjarílát í bakopoka, flautu og álteppi hvernig sem viðrar. Ef það verður rigning og kuldi þurfa þátttakendur að vera með regnjakka og buxur.

Skoða leiðina á Fatmap

Dyrfjallahlaup - Víknaslóðir 23,4 km

Vegalengd: 23,4 km - Heildarhækkun: 1076m - Heildarlækkun: 1132m - Hæsti punktur: 445m.y.s - Lægsti punktur: 5m. y.sm. 

Leiðin hefst við Þverá í innsveit Borgarfjarðar. Fyrst um sinn er hlaupið eftir jeppaslóða áður en er beygt inn á gönguleið um Urðarhóla. Þar er stuttur grófur kafli áður en er komið að hinu fallega Urðarhólavatni. Þaðan er hlaupið eftir gönguleið að Víknaheiði (258m) inn á grófan jeppaslóða sem liggur út Breiðuvík að gönguskála. Farið er yfir Stóruá í Breiðuvík á göngubrú. Frá Breiðuvík er hlaupið eftir gönguleið um gróið land og mela ofan Kjólsvíkur að Syðra-varpi í 445m hæð. Þaðan er hlaupið ofan við Hvalvík og svo út Brúnavík niður að slysavarnaskýli. Þar sem hlaupaleiðirnar mætast. Vaða þarf Brúnavíkuránna sem er ekki mikið vatnsfall og er hún þveruð alveg niður við sjó. Frá Brúnavík tekur við stíf brekka fyrst áleiðis að Brúnavíkurskarði (354m). Hlaupið er þennan hluta leiðarinnar eftir gamalli reiðgötu sem er góð og mikið gengin. Frá Brúnavíkurskarði liggur leiðin niður að sjó og síðustu 400 metrana er hlaupið á malbiki að endamarki við Borgarfjarðarhöfn. Drykkjarstöðvar verða á þremur stöðum á leiðinni í Breiðuvík og Brúnavík með vatn og orkudrykki með ca 6 km millibili.

Skoða leiðina á Fatmap.

Dyrfjallahlaup - Brúnavíkurleið 11,7 km (styttri leiðin)

Vegalengd: 11,7 km - Heildarhækkun: 735m - Heildarlækkun: 729m - Hæsti punktur: 354m.y.s - Lægsti punktur: 15m. y.sm. 

Rásmark verður við Hólahorn á Borgarfirði og hlaupið fyrst um sinn með grófum jeppaslóða yfir Hofstrandarskarð (350m) til Brúnavíkur. Jeppaslóðinn endar innst í víkinni og þar er farið inn á gönguleið sem liggur að gömlu slysavarnaskýli þar sem hlaupaleiðirnar mætast. Frá Brúnavík tekur við stíf brekka fyrst áleiðis að Brúnavíkurskarði (354m). Hlaupið er þennan hluta leiðarinnar eftir gamalli reiðgötu sem er góð og mikið gengin. Frá Brúnavíkurskarði liggur leiðin niður að sjó og síðustu 400 metrana er hlaupið á malbiki að endamarki við Borgarfjarðarhöfn. Drykkjarstöð verður í Brúnavík með vatn og orkudrykki. 

Skoða leiðina á Fatmap.

Skráning

Skráning er á netskraning.is.