Um hlaupið

  • Vegalengdir500 m, 1 km, 1,5 km, 5 km, 10 km, 18 km, 32 km
  • Dagsetning17. ágúst 2024

Fjarðarhlaupið verður haldið laugardaginn 17. ágúst kl 10:00 á Ólafsfirði.

Eins og venja er með Fjarðargönguna þá verður fyrst og fremst hrikalega gaman hjá okkur í Fjarðarhlaupinu! Flott umgjörð, tónlist, úrdráttarveðlaun, veitingar eftir keppni, allir fá þátttökuverðlaun en fyrst og fremst höfum við gaman!

Fjarðarhlaupið Mark IMG 8270
Fjarðarhlaupið 2023
Vegalengdir og skráning

Hægt verður að velja um nokkrar vegalengdir, 500m, 1 km, 1.500 me barnahlaup, 5 km eða 10 km götuhlaup (skemmtiskokk), 18 km og 32 km utanvegahlaup.

  • 500 m, 1 km og 1.500 m Barnahlaup fyrir 10 ára og yngri, ekkert þátttökugjald
  • 5 km og 10 km, skemmtiflokkur fyrir alla, þátttakandi ræður vegalengd, 4.000 kr.
  • 18 km, fjallahlaup 12 ára og eldri, 8.000 kr (innifalinn akstur í start frá Ólafsfirði)
  • 32 km, fjallahlaup 17 ára og eldri, 12.000 kr (innifalinn akstur í start frá Ólafsfirði)

Skráning er hjá Netskráningu

Leiðarlýsing

Barnahlaup 500m, 1.000m, 1.500m
Ræst er í miðbæ Ólafsfjarðar. Hlaupið ætlað 5 ára og yngri, 6-8 ára og 9-10 ára.

5 km og 10 km götuhlaup
Ræst er í miðbæ Ólafsfjarðar og hlaupinn 5 km eða 10 km hringur á götum og stígum. Hlaup sem hentar öllum.

18 km fjallahlaup

  • Hlaupið er fyrir 12 ára og eldri
  • Heildarhækkun: 656m
  • Drykkjarstöðvar: 1
  • GPX track: væntanlegt
  • ITRA stig: 1

Ræst er frá Héðinsfjarðargöngum og hlaupið sem leið liggur að Víkurdal, hlaupið inn dalinn og yfir Rauðskörð (600m) og niður Ytri-Árdal að Kleifum í Ólafsfirði. Endamark er í miðbæ Ólafsfjarðar og er leiðin alls rúmlega 18 km löng. 

32 km fjallahlaup

  • Hlaupið er fyrir 17 ára og eldri
  • Heildarhækkun: 1.291m
  • Drykkjarstöðvar: 2
  • GPX track: væntanlegt
  • ITRA stig: 2

Ræst verður frá Sigló Hótel og hlaupið sem leið liggur inn Hólsdal í Siglufirði og upp í Hólsskarð. Þar er stefnan tekin niður Ámárdal, niður í Héðinsfjörð að Héðinsfjarðargöngum. Þá er stefnan sett á Víkurdal yfir Rauðskörð og niður Ytri-árdal að Kleifum í Ólafsfirði. Endamark er í miðbæ Ólafsfjarðar og er leiðin alls um 32 km löng. Farið yfir tvo fjallgarða sem báðir eru í um 600 m hæð yfir sjó.

Drög að dagskrá fyrir laugardaginn 17. ágúst
  • 8:00-9:30 Afhending keppnisgagna (staðsetning nánar auglýst síðar)
  • 10:00 Fjarðarhlaupið 32 km, ræst frá Sigló Hótel
  • 11:00 Fjarðarhlaupið 18 km, ræst frá Héðinsfirði
  • 12:00 Fjarðarhlaupið 5 km og 10 km, ræst frá miðbæ Ólafsfjarðar.
  • 12:10 Barnahlaupið 1 km, ræst frá miðbæ Ólafsfjarðar

Nánari upplýsingar

Sendið póst á: skidafelagolf@gmail.com

Kort af leiðinni
Fjarðarhlaup-Kort
Fjarðarhlaup-Kort