Gamlárshlaup UFA til styrktar barna - og unglingastarfi félagsins verður með öðru sniði í ár vegna samkomutakmarkanna. Ekki verður haldið formlegt keppnishlaup en við hvetjum alla til að klæða sig upp á Gamlársdag og fara út að ganga eða hlaupa. Þeir sem skrá sig og greiða inn á reikning félagsins eiga möguleika á að vinna útdráttarverðlaun frá fyrirtækjum í bænum. Einnig verða veitt verðlaun fyrir flottustu búninga liðs, þar sem 2-5 geta verið saman í liði.
Til að fá smá stemningu í tilefni dagsins er mælt með því að fólk fari eftir göngustígnum meðfram sjónum frá Hofi milli kl. 10.30 og 12.30 og mæti þar öðrum hlaupurum. Fólk er engu að síður minnt á að gæta að sóttvörnum, hlaupa saman í litlum hópum og forðast öll faðmlög og návígi í lengri tíma.
Svona takið þið þátt:
- Þið skráið ykkur til leiks á þessari slóð og leggið keppnisgjaldið inn á reikning UFA (sjá reikningsupplýsingar neðst á síðunni). Þátttökugjald er lágmark kr. 1500 fyrir fullorðna og 500 kr fyrir börn 16 ára og yngri (má greiða meira ef fólk vill styrkja UFA meira en sem þessu nemur).
- Klæðið ykkur "upp á" eins og hefð er fyrir í þessu hlaupi og sendið okkur skemmtilega mynd inn á viðburð hlaupsins á facebook. Merkið myndirnar með nafni einstaklings/liðs og dæmt verður í búningakeppninni út frá þeim myndum sem berast.
Verðlaun frá styrktaraðilum hlaupsins (Bláa kannan, Dominos, Ellingsen, Norðlenska, Sportver, M-sport, MS, o.fl.) verða dregin út eftir að skráningu lýkur á hádegi 30. desember. Tilkynnt verður á facebooksíðu hlaupsins hverjir hafa verið dregnir út og fólk getur nálgast vinningana sína við Hof milli kl. 10.30 og 12.30 á gamlársdag.
Tilkynnt verður um úrslit í búningakeppninni 2. janúar.
Allur ágóði af hlaupinu í ár rennur í ferðasjóð frjálsíþróttakrakka sem safna fyrir ferð á Gautaborgarleika næsta sumar.
Greiðsluupplýsingar:
Reikningsnúmer: 0566-26-007701
Kennitala: 520692-2589
Merkið með skýringunni ''Gamlárshlaup''.