Hafnarfjarðarhlaupið verður haldið í fyrsta skipti fimmtudaginn 8. júní kl. 20:00 í samvinnu við Frjálsíþróttadeild FH, Hafnarfjarðarbæ, Fjarðarkaup, Nike og Vitamin Well.
Umgjörð
Hafnarfjarðarhlaupið mun komast í fámennan hóp götuhlaupa á Íslandi, þar sem hlaupið mun í raun og veru fara fram á götum bæjarins, en lokað verður fyrir umferð á meðan hlaupið fer fram.
Miðpunktur hlaupsins verður á Thorsplani, en þar mun hlaupið bæði byrja og enda. Á hlaupaleiðinni mun vera drykkjarstöð við 5 km markið þar sem hlauparar geta fengið vatn og Vitamin Well. Eftir hlaup geta hlauparar líka fengið vatn og Vitamin Well, ásamt næringu á borð við Barebells próteinstykki, banana og kleinur. Keppendur munu geta nýtt sér munageymslu á meðan hlaupið fer fram og eins mun vera komið fyrir salernisaðstöðu á Strandgötu.
Að hlaupi loknu mun öllum þátttakendum bjóðast að fara í sund í Suðurbæjarlaug, sem verður opin til miðnættis.
Verðlaun
Allir þátttakendur munu eiga möguleika á að vinna glæsileg verðlaun sem verða veitt í samvinnu við samstarfsaðila mótsins. Hæst ber að nefna verðlaun fyrir þá hlaupara sem enda í efstu þremur sætunum, í karla- og kvennaflokkum, en það verða peningaverðlaun ásamt öðrum glæsilegum verðlaunum. Peningaupphæðirnar sem um ræðir verða:
- 1. sæti – 100.000 kr
- 2. sæti – 50.000 kr
- 3. sæti – 25.000 kr
Að auki verða veitt verðlaun fyrir sigurvegara í hverjum aldursflokki fyrir sig auk þess sem vegleg útdráttarverðlaun verða í boði.
Aldursflokkar
Eftirfarandi aldursflokkar verða í Hafnarfjarðarhlaupinu árið 2023:
- 18 ára og yngri
- 19-29 ára
- 30-39 ára
- 40-49 ára
- 50-59 ára
- 60 ára og eldri
Hlaupaleið
Hafnarfjarðarhlaupið er 10 km götuhlaup. Reynt var að takmarka beygjur og brekkur í hlaupinu og ætti brautin því að vera tilvalin fyrir bætingar.
Hlaupið verður ræst á Strandgötu við Thorsplan og hlupið eftir henni í átt að Suðurbæjarlaug. Þaðan verður Suðurgatan hlaupin og farið verður yfir lækinn og upp Álfaskeið þar sem mjög flatur og hraður kafli tekur við. Þar verður farið um hraunin og inn í Norðurbæ Hafnarfjarðar þar sem meðal annars verður hlaupið á Hjallabraut, Breiðvangi og Norðurvangi. Næst taka hlauparar lítinn hring hjá grönnum okkar í Garðabæ umhverfis Garðaholt en koma síðan niður að Herjólfsgötu þar sem tekur við hraður lokakafli með ágætri lækkun sem endar aftur við Thorsplan.
Sjá má kort af leiðinni neðst á síðunni.
Afhending gagna
Hlauparar munu sækja hlaupagögnin í Fjarðarkaupum en hægt verður að ná í gögnin á eftirfarandi tímum:
- 7. júní: 09:00 – 18:00
- 8. júní: 09:00 – 18:00
Þátttakendur munu fá hlaupanúmer með tímatökubúnaði sem ekki má beygla, en þá gæti tímatökubúnaðurinn eyðilagst. Til að fá frítt í sund um kvöldið þurfu hlauparar að sýna hlaupanúmerið sitt.
Skráning og þátttökugjöld
Hægt verður að skrá sig til miðnættis þann 7. júní en forsölu lýkur 24. maí og þá mun þátttökugjald hækka. Þátttökugjöld eru eftirfarandi:
- 18 ára og yngri: Forsala 2.500 kr - Frá og með 25. maí: 3.000 kr.
- Fullorðin: Forsala 4.500 kr - Frá og með 25. maí: 5.000 kr.
Nánari upplýsingar
Facebook síða hlaupsins: Hafnarfjarðarhlaupið
Nánari upplýsingar má finna með því að hafa samband við skipuleggjendur með tölvupósti á netfanginu: valurelli@gmail.com