Um hlaupið

  • VegalengdirHálft maraþon, Maraþon
  • Dagsetning21. nóvember 2020

Haustmaraþon Félags maraþonhlaupara 2020 verður ræst við rafstöðina í Elliðaárdal laugardaginn 21. nóvember (frestað frá 24. október) og hefst keppni í heilu maraþoni klukkan 08:00 en hálfu maraþoni 10:00. Mætið tímanlega.

Vegalengd

Maraþon og hálft maraþon.

Leiðin

Ræst er við nýju brýrnar við rafstöðina í Elliðaárdal. Elliðaárdalur-Fossvogur-Nauthólsvíkurlykkja-Ægisíða að snúningi og sama leið tilbaka. Tveir hringir fyrir heilt, einn fyrir hálft sjá nánari á korti hér fyrir neðan.

Drykkjarstöðvar

Drykkjarstöðvar eru við Háskólann í Reykjavík, snúninginn við Ægissíðu og í endamarkinu. Boðið er upp á Powerade, vatn og Coke.

Tímataka

Tímataka fer fram með flögum.

Þátttökugjald/Entry fee

Þáttökugjald er 5.000 kr. fyrir hálft maraþon og 7.000 kr. fyrir heilt maraþon.

Skráning/Registration

Skráning fer fram netinu.

Hlaupanúmer og tímatökuflaga eru afhent í versluninni Sport24 að Sundaborg 1, 104 Reykjavík á föstudeginum fyrir hlaupið frá kl. 10 til kl. 18 og þá líkur skráningu í hlaupið. Ekki hægt að skrá sig í hlaupið eftir það.

Verðlaun

Bikar fyrir þrjú fyrstu sætin í heilu og hálfu maraþoni og allir sem vilja fá verðlaunapening.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veita Sigrún Erlendsdóttir sigruner(hja)gmail.com og peturhh(hja)gmail.com.
Vefsíða hlaupsins: http://www.marathonhlaup.is/
Facebooksíða: www.facebook.com/springautumnmarathon