Þátttökugjald

  • 4 km - 12 ára og yngri0 kr
  • 4 km - 13 ára og eldri2.000 kr
  • 12 km Ríkishringur4.000 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir4 km, 12 km
  • Dagsetning3. október 2020
Sjá úrslit Myndasafn úr hlaupinu

Laugardaginn 3. október kl 11:00 verður fyrsta Heiðmerkurhlaupið ræst. Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir hlaupinu í samstarfi við Náttúruhlaup í tilefni af 70 ára afmæli Heiðmerkur. Árið 1950 var Heiðmörk formlega vígð við hátíðlega athöfn eftir að bæjarstjórn Reykjavíkur hafði samþykkt að stofna friðland og útivistarsvæði fyrir Reykvíkinga. Á þeim 70 árum sem liðin eru, hefur Heiðmörk orðið eitt vinsælasta útivistarsvæði, þökk sé samstarfi almennings og Skógræktarfélags Reykjavíkur. Nýlega var stígakerfið í Heiðmörk gert aðgengilegra með lita- og lengdarmerkingum. Hægt er að nálgast á kort af Heiðmörk með merktum leiðum á heidmork.is.

Með Heiðmerkurhlaupinu er fastagestum og nýjum áhugahlaupurum boðið að kynnast stígakerfinu og njóta þess að hlaupa í faðmi skógarins.

Viðburðurinn er auglýstur með þeim fyrirvara að samfélagslegar aðstæður muni leyfa að hann verði haldinn.


Vegalengdir
  • 4 km (skemmtiskokk)
  • Hinn vinsæli 12 km Ríkishringur.

Hlaupið hefst við Borgarstjóraplan sjá kort.

Heiðmerkurhlaupið

Tímasetningar
  • 11:00: 12 km – Ríkishringur. Ræst frá Borgarstjóraplani. Eftir hlaup verður boðið upp á kakó og ketilkaffi yfir varðeldi.
  • 13:00: 4 km skemmtiskokk - Guli hringurinn. Einnig má nýta þessa leið sem gönguleið. Ræst frá Borgarstjóraplani.
  • 13:30: Verðlaunaafhending fyrir fyrstu sætin og útdráttarverðlaun.


Eftir hlaup verður boðið upp á kakó og ketilkaffi yfir varðeldi.


Þátttökugjald og skráning

Skráning fer fram hér á hlaup.is, sjá skráningarlink efst á þessari síðu.

  • Skemmtiskokk - 4 km: 2.000 kr. Frítt fyrir 12 ára og yngri.
  • Ríkishringurinn - 12 km : 4.000 kr


Innifalið í þátttökugjaldi er flögutímataka, brautarvarsla og hressing í lok hlaups. Keppnisgögn verða afhent frá kl. 10:00 í Elliðavatnsbæ á keppnisdag.


Athugið að aðeins verða í boði 100 pláss í hvora vegalengd.

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í Ríkishringnum í karla - og kvennaflokki, ásamt útdráttarverðlaunum.


Í verðlaun verða jólatré frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur sem vinningshafar geta nálgast á hinum árlega jólamarkaði sem haldinn er við Elliðavatn aðventuhelgarnar fyrir jól.


Verðlaun Ríkishringur - Karlaflokkur
  • 1. Verðlaun - Jólatré frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur að andvirði 20.000. Auk þess fær sigurvegari skógarolíur frá Hraundísi. Hraundís er skógarbóndi sem hefur um árabil unnið ilmkjarnaolíur úr íslenskum skógum.
  • 2. Verðlaun - Jólatré frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur að andvirði 16.000.
  • 3. verðlaun - Jólatré frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur að andvirði 9.000.


Verðlaun Ríkishringur - Kvennaflokkur
  • 1. verðlaun - Jólatré frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur að andvirði 20.000. Auk þess fær sigurvegari skógarolíur frá Hraundísi. Hraundís er skógarbóndi sem hefur um árabil unnið ilmkjarnaolíur úr íslenskum skógum.
  • 2. verðlaun - Jólatré frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur að andvirði 16.000.
  • 3. verðlaun Jólatré frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur að andvirði 9.000.


Útdráttarverðlaun fyrir Ríkishringinn.

Jólatré frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur að andvirði 20.000 ásamt eldiviðarbúnti.

Nánari upplýsingar

Skipuleggjandi hlaupsins er Skógræktarfélag Reykjavíkur í samstarfi við Náttúruhlaup. Nánari upplýsingar veitir gudfinnamjoll@heidmork.is eða helgamaria@arcticrunning.is.