Þátttökugjald

  • 2,3 km - 12 ára og yngri0 kr
  • 2,3 km - 13 ára og eldri2.000 kr
  • 12 km4.500 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir2,3 km, 12 km
  • Dagsetning28. september 2024

Laugardaginn 28. september heldur Skógræktarfélag Reykjavíkur Heiðmerkuhlaupið í fjórða sinn í samstarfi við Náttúruhlaup og Fjallakofann. Með hlaupinu vill Skógræktarfélagið bjóða fastagestum og nýjum áhugahlaupurum að kynnast stígakerfinu í Heiðmörk og njóta þess að hlaupa í faðmi skógarins.

Skógræktarfélag Reykjavíkur var stofnað árið 1901. Félagið hefur m.a. umsjón með skóginum í Heiðmörk og Esjuhlíðum ásamt viðhaldi og uppbyggingu stígakerfis og áningastaða á þessum svæðum. Sífellt fleiri velja að stunda hlaup í skógi enda er þar alltaf skjól! Hlauparar eru eindregið hvattir til að gerast félagsmenn í Skógræktarfélaginu og styðja með því við uppbyggingu stíga til hagsbóta fyrir hlaupara, árgjaldið er 4.500 kr. og fer skráning í félagið hér.

Vegalengdir
  • 2,3 km - Skemmtiskokk
  • 12 km - Ríkishringur

Hægt er að nálgast á kort af Heiðmörk með merktum leiðum á heidmork.is.

Staðsetning

Hlaup hefst frá Elliðavatni.

Tímasetningar
  • 11:00. 12 km – Ríkishringur. Ræst frá Elliðavatni.
  • 12:00. 2,3 km – Skemmtiskokk. Ræst frá Elliðavatni.
  • Verðlaunaafhending fyrir fyrstu sætin og útdráttarverðlaun frá Fjallakofanum fara fram að hlaupi loknu.


Eftir hlaup verður boðið upp á kakó og kaffi yfir varðeldi.


Þátttökugjald og skráning

Skráning fer fram hér á hlaup.is, sjá skráningarhlekk efst á þessari síðu og lýkur hér á hlaup.is kl. 12 á hádegi föstudaginn 27. september. Þátttökugjöld eru eftirfarandi:

  • Skemmtiskokk - 2,3 km: 2.000 kr. Frítt fyrir 12 ára og yngri.
  • Ríkishringurinn - 12 km: 4.500 kr


Innifalið í þátttökugjaldi er flögutímataka, brautarvarsla og hressing í lok hlaups. Keppnisgögn verða afhent á eftirfarandi stöðum og tímum:

  • Fjallakofanum Hallarmúla 2, fimmtudaginn 26. september kl. 10-18.
  • Fjallakofanum Hallarmúla 2, föstudaginn 27. september kl. 10-18.
  • Í Elliðavatnsbæ á keppnisdag frá kl. 9:30 - 10:30.

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í karla - og kvennaflokki, ásamt útdráttarverðlaunum. Í verðlaun eru jólatré frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur sem vinningshafar geta nálgast á hinum árlega jólamarkaði sem haldinn er við Elliðavatnsbæ allar aðventuhelgarnar. Einnig verða útdráttarverðlaun frá Fjallakofanum sem er styrktaraðili hlaupsins.

Nánari upplýsingar

Skipuleggjandi hlaupsins er Skógræktarfélag Reykjavíkur í samstarfi við Náttúruhlaup. Nánari upplýsingar: heidmork@heidmork.is.