Um hlaupið

  • Vegalengdir5 km, 10 km
  • Dagsetning24. september 2022

Hjartadagshlaupið fer fram laugardaginn 24. september kl. 10.

Vegalengdir og hlaupaleið

Í boði eru tvær tímamældar vegalengdir, 5 km og 10 km. Ræst er kl. 10:00 í báðar vegalengdir inn á Kópavogsvelli en hlaupið er út Kársnes og til baka í mark inn á Kópavogsvöll. Drykkjarstöð verður á miðri hlaupaleið og eftir 5 km og við endamark. Hlaupaleiðin hefur fengið löglega mælingu.

Verðlaun

Verðlaun fyrir fyrsta karl og konu í báðu hlaupum og vegleg útdráttarverðlaun m.a. frá Sky Lagoon. Verðlaunaafhending fer fram strax að hlaupi loknu.

Skráning og þátttökugjald

Skráning í hlaupið hefst 30. ágúst og lýkur 22. september. Skráning í hlaupið fer fram á netskraning.is. Einungis 400 númer verða í boði.

  • 10 km hlaup kostar 5.000 kr
  • 5 km hlaup kostar 3.000 kr

Innifalið í þátttöku er miði í sund í sundlaugum Kópavogs

Hlaupagögn verða afhent í versluninni Hlaupár í Fákafeni 11, milli 11 og 18 frá 12. - 23. september.

Aðrar upplýsingar

ÞÁTTTAKENDUR ERU HVATTIR TIL AÐ KLÆÐAST RAUÐU.

Hjartadagshlaupið er haldið í tilefni Alþjóðlegs hjartadags sem haldinn er í yfir 120 löndum á hverju ári. Markmið Hjartadagsins, er að auka vitund og þekkingu almennings á ógnum hjarta- og æðasjúkdóma og leggja áherslu á heilbrigða lífshætti svo að börn, unglingar og fullorðnir um allan heim öðlist betra og lengra líf.